Afrit af bréfi hreppsefndar Akrahrepps til Sigurðar E. Ólasonar. Tvö samhljóða afrit, vélrituð á pappírsarkir í A4 stærð. Búið er að handskrifa athugasemdir á annað afritið.
Afrit af bréfi hreppsefndar Akrahrepps til Sigurðar E. Ólasonar. Meðfylgjandi er bréf til oddvita, þar sem bréfritari lætur fylgja uppkasti að samhljóða bréfi. Það varðar málaferli vegna Sprengisandssvæðisins.
Skjalasafnið inniheldur bókhaldsgögn, bréf, gögn varðandi félagsheimili, fundagögn, gögn varðandi málaferli v. Eyjafjörð, skólamál skýrslur, útgefin blöð og gögn um sjúkrasamlag, elli- og örorkubætur.
Ólafur Björnsson, hrd hjá Lögmenn Suðurlandi ehf, vann að þjóðlendumálum fyrir hönd Skagfirðinga. Þetta eru málsgöng varðandi þrjú svæði: Una- og Deildartunguafrétt, Eyvindastaðaheiði og Hof í Vesturdal. Sumt var rekið fyrir hönd sveitarfélags, annað fyrir einkaaðila.
4 handskrifaðar pappírsarkir í A4 stærð. Virðist uppkast að bréfi, afrit gert með kalkipappír. Varðar landmerkjamál Upprekstrarfélags Saurbæjarhrepps. Undirritað af Jóhann L. Jóhannessyni, Silfrastöðum.
Minnispunktarnir eru skráðir á 8 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Þeir varða deilur Eyfirðinga og Skagfirðinga um Nýjabæjarafrétt og Laugarfellsöræfi.
Á þessari síðu er Sölvi augljóslega að bregðast við ákærum Sigfúsar Skúlasonar sýslumanns í Eyjafirði um bókaþjófnað. Sölvi lýsir því hvernig hann ýmist kaupir, selur eða gefur bækur á ferðalögum sínum. Hann nafngreinir menn sem hann hefur keypt af bækur, t.d. segist hann hafa keypt bækur af Jóni Bónda á Haukagili í Vatnsdal. Nokkuð af þeim bókum segir Sölvi að hafi verið óseldar þegar haldið var austur og þar hafi hann ýmist selt þær eða gefið. Hann rifjar jafnframt upp ákærur Daníels Jónssonar á hendur sér fyrir bókaþjófnað og minnist á Eggert Briem sem dæmdi í því máli. Hann furðar sig á að Sigfús hafi getað án nokkra sannana gert upptækar þær bækur sem hann þóttist eiga. Sölvi gerir sjálfur grein fyrir að minnsta kosti hluta þessara bóka og nefnir m.a. að hann hafi fengið Mynstershugleiðingar hjá Ólafi bókbindara á Ystu-Grund í Skagafirði (Ólafur Guðmundsson 1808-1853).
Sölvi fjallar um málaferlin árið 1854 en hann var ákærður fyrir bæði þjófnað og flakk. Réttarhöld þessi voru afdrifarík fyrir Sölva því dómurinn var þungur. Hann var dæmdur til þriggja ára betrunarvistar í Kaupmannahöfn. Í þessu handriti fer hann m.a. yfir sakargiftir sýslumannsins, kvartar undan óréttlætinu sem hann telur sig beittann og ítrekar sakleysi sitt. Við sögu koma auk Schulesen m.a. Eggert Briem, Jóhann Pálsson í Keldarnesi og Stefán Jónsson.
Útskrift úr dómsmálabók Eyjafjarðarsýslu 31. maí 1924 og útskrift úr dómamálabók Skagafjarðarsýslu 27. júní 1924 Sigurður Þórðarson skrifar undir f.h nefndar í Skagafjarðarsýslu
Stefnan er á pappírsörk í A4 stærð og er merkt endurrit. Meðfylgjandi er umslag merkt "stefna frá 16. maí 1925". Á umslagið er einnig búið að rita athugasemdir varðandi málið.
Tvö eintök af landakorti. Uppdráttur Íslands , blað 64, Vatnahjallavegur. Neðst í vinstra horni stendur: "Uppdráttur Íslands smækkaður niður í 1:200 000. Sýslumörk og landamerki samkævmt skoðun eigenda Ábæjar og Nýjabæjar í Skagafirði. Reykjavík 3. maí 1966 Zophonías Pálsson verkefr F.V.Í."