Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur voru um tíma skráðar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðárkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annar staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Sjá má járnbrautateina er lágu frá bryggjunni uppá plönin, þar sem síldin var verkuð og fiskur vaskaður.
Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Þorvaldsdóttir (kennara)- Hulda Jónsdóttir og María Stefánsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigurlína Stefánsdóttir- Ása Egilsdóttir- Karólína Konráðsdóttir og Ólafía Sigurðardóttir.
Úr fiskvinnslusal Fiskiðjunnar sumarið 1988. Frétt í Feyki þar sem Fiskiðn, félag fiskiðnaðrins hvetur til aukinnar mentunnar og fræðslu í sjávarútvegi.
Aðalfundur Fiskiðjunnar Skagfirðings haustið 1996. Önnur sætaröð f.v. Hilmir Jóhannesson, Árni Egilsson, Knútur Aadnegard, Frímann Guðbrandsson og Guðjón Ingimundarson. Í þriðju sætaröð er Árni Guðmundsson lenst t.v. Aðrir óþekktir.