Í fyrir bók stendur: Í þessu blaði stendur; "Gaman og Alvara kemur út á hálfsmánaðar fresti um 6. blöð í senn. Blaðið flytur sögur, kver, stöku, ritgerðir, skrítlur, spurningar og svör, vísuparta og botna o.m.m. fl. sem allt er vandað bæði að efni og búningi. Ekkert blað á landinu fjallar um eins mörg málefni og þetta blað þrátt fyrir hina mörgu erfiðleika sem það á við að stríða áður en það getur komið fyrir almenningssjónir. Undir þetta skrifar "ritstjóri".
Sveitablaðið Gaman og alvara, gefið út í Akrahreppi 1916-1919. Gefið út af tilhlutan nokkra ungra manna. Ritstjóri Hannes Magnússon og á seinni tölublöðum Jón Eiríksson.
Haukur úr Holti skrifar um áramót 1926-1927 um uppeldismál. Grein er nefnist; Sorgarstaðurinn eftir Gest. Síðasta blaðsíðan hefur lausavísur eftir Hærukoll.
Viðar, sveitablað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi á árunum 1914-1916. Þetta blað fjallar m.a. um verslun á Íslandi, Um lestarfélagsskemmtun, grein um Böð eða sund, sögur, ævintýri og kveðskapur ýmis konar. Þá er kafli um tóbak. Inn í þann kafla hefur verið sett skjal eitt með undirskrift þeirra sem ætla að sniðganga slík efni. Þetta er undirritað 3. mars 1911 og hefur líklega verið bundið inn í þessa bók.
Viðar blað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi 1916. Meðal efnis er grein um ferðalög, um nautgriparækt, um kosningar, um draum, þegnskylduvinnu og ýmislegt fleira.