3 bréf. Eitt af þessum bréfum er frá Bæjarstjórn Sauðárkróks til sýslunefndar Vestur-Húnavatnssýslu, sýslunefndar Austur-Húnavatnssýslu. sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og bæjarstjórnar Siglufjarðarkaupstaðar í tengslum við samstarf um stofnun Iðnskóla Noðurlandsumdæmis vestra á Sauðárkróki. Með þessu bréfi eru fylgiskjöl.
Sýslunefndafundur í Gúttó. Fremstur er Stefán Vagnsson fundarritari. Frá vinstri í aftari röð: Pétur Jóhannsson, Glæsibæ, Þorsteinn Hjálmarsson, Hofsósi, Gunnsteinn Steinsson, Ketu, Jón Eiríksson, Fagranesi (bak við), Haraldur Jónasson, Völlum, og Sigurður Sigurðsson sýslumaður. Myndin tekin í Gúttó (ca. um 1955).
Sýslunefndafundur. Frá vinstri: Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Jón Sigurðsson, Reynistað, Sigurjón Helgason, Nautabúi og Bessi Gíslason, Kýrholti. Myndin er tekin í Gúttó (ca. um 1955).
Sýslufundur. Frá vinstri: Haraldur Jónasson, Völlum, Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Jón Sigurðsson, Reynistað, Sigurjón Helgason Nautabúi og Bessi Gíslason, Kýrholti. Næstur er Stefán Vagnsson, fundarritai Myndin er tekin í Gúttó (ca. um 1955).
Sýslufundur. Frá vinstri: Páll Þorgrímsson, Hvammi, Gísli Magnússon, Eyhildarholti, Pétur Jóhannsson, Glæsibæ, Þorsteinn Hjálmarsson, Hofsósi, Gunnsteinn Steinsson, Ketu, Jón S. Eiríksson, Fagranesi og Haraldur Jónasson, Völlum. Myndin er tekin í Gúttó. (ca. 1955-1960).
Sýslufundur. Frá vinstri: Bessi Gíslason, Kýrholti, Gísli Gottskálksson, Sólheimagerði, Jón Gunnlaugsson, Móafelli, Hermann Jónsson, Ysta-Mói og Jón Jónsson, Hofi. Myndin er tekin í Gúttó (ca. 1950-1955).
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (Um eða fyrir 1950). Sigurður Sigurðsson sýslumaður er við vegginn fjær t.h. fyrir miðju. Stefán Vagnsson fundarritari er innan við borðið.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu sunnan við fundahús sitt á Sauðárkróki (Templarahúsið). Talið f.v. Jón Björnsson, Jón Jónsson, Friðbjörn Traustason, Gísli Sigurðsson, Björn Jónsson, Hermann Jónsson, Pétur Hannesson, Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Steinn L. Sveinsson, Stefán Vagnsson, Jón Gunnlaugsson, Árni Daníelsson, Jóhannes Kristjánsson, Gísli Magnússon, Arngrímur Sigurðsson og Haraldur Jónasson.