Með myndinni fylgdi miði þar sem mennirnir eru nafngreindir. Efri röð frá vinstri: Símon Jóhannsson frá Goðdölum, Hörleifur Andréssson frá Sauðárkróki, Albert Erlendsson frá Selá, Guðvarður [Sigurbjörn Steinsson] frá Kleif. Neðri röð frá vinstri: Björn Magnússon frá Borgarlæk, Sigurður Jónsson frá Hvalnesi, Þorvaldur Þorvaldsson frá Skíðastöðum, Stefán Sigurðsson frá Sævarlandi.
Frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir "brennis" frá Sauðárkróki, kona Tómasar Gíslasonar kaupmanns. Ingibjörg Jónsdóttir, bjó á Ísafirði, kona Björns Magnússonar, símstjóra á Borðeyri og Ísafirði.
Myndin er tekin laust eftir aldamót. Talið frá vinstri: Pétur Eriksen skósmiður- Steindór Jónsson smiður- Björn Magnússon síðar símstjóri- Jóhann Jóhannesson skósmiður- Gunnar Jónasson frá Hólakoti á Reykjaströnd- Þorsteinn Sigurgeirsson verslunarmaður hjá K.G.- óþekktur og Daníel Davíðsson ljósmyndari.
Björn Magnússon seinast á Ísafirði og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir (Brennis) og Daníel Davíðsson ljósmyndari á Sauðárkróki. Eftirtaka úr safni Daníels. Gefandi: Bogi Árnason.