Pappírsgögn handskrifuð, sex lítil blöð vel læsileg sett saman í eina örk eins og þau lágu í safni. Segja frá stofnfundi og næstu fundum en ekkert um lög félagsins, tilgang né framvindu félagsins.
Viðtöl við Harald Jónasson frá Völlum, tekið júní 1969. Rætt um félagsstörf Haraldar og samtíðamenn. Haraldur gekk í Unglingaskólann í Vík og gagnfræðaskólann á Akureyri.
Sýslufundur. Frá vinstri: Haraldur Jónasson, Völlum, Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Jón Sigurðsson, Reynistað, Sigurjón Helgason Nautabúi og Bessi Gíslason, Kýrholti. Næstur er Stefán Vagnsson, fundarritai Myndin er tekin í Gúttó (ca. um 1955).