Efni bréfs: Kynnt fyrir stjórnmálaflokkum þann möguleika að koma á framfæri efni um stefnumál sín og kynningu á framboðslistum sínum í Feyki. Handskrifuð undirskrift. Með eru blöð með samskonar texta, en eilítið umorðaður. Þau bréf eru dagsett 20. nóvember 1981.
F.v. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra, Magnús Sigurjónsson og Jón F Hjartarson skólameistari á Kaffi Krók. Hugsanlaga fundur um atvinnumál haustið 1996.
F.v. Þorsteinn Pálsson ráðherra, Vilhjálmur Egilsson þingmaður og Jón F Hjartason skólameistari á fundi á Kaffi Krók. Hugsanlega fundur um atvinnumál haustið 1996.
Mynd sennilega tekin norðan við Verknámshús Fjölbrautaskólans. Tilefnið óþekkt. (1983-1986). F.v. Óþekktur, Sigrún Alda Sighvatsdóttir, óþekktur, Pálmi Rögnvaldsson, Jón Hjartarson, Rúnar Bachmann, Björn Sigurbjörnsson, Jón Ásbergsson (á bak við), Bragi Halldórsson og sr. Hjálmar Jónsson.
Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Við útskrift í FNV vorið 1996 var listaverkið NAM eftir Finnu Birnu Steinsson afhjúpað. Frá vinstri, Finna Birna Steinsson listamaður, Ragnar Arnalds (1938-) alþingismaður og Jón Friðberg Hjartarsson (1947-) skólameistari.
Óþekktur fundur í matsal Heimavistar Fjölbrautaskólans. F.v. Ragnar Arnalds ráðherra, Þorkell Þorsteinsson, Jón Hjartarson skólameistari, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sveinn Allan Mortens og Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri.
Fundur sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir um atvinnumál á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. Vinstra megin við borðið næst eru f.v óþekktur, Jón Hjartarson skólameistari, Kristján Sigurpálsson Varmahlíð, Magnús Sigurjónsson Skr. og Hilmir Jóhannesson Skr. Aðrir óþekktir.