Innbundin og vel læsileg harðspjaldabók, í bókinni eru skráð formleg erindi og bréf sem send eru í nafni félagsins einnig fundarboð. Í bókinni er auk þess handskrifað afrit af samningi Garðyrkjufélags Seyluhrepps og Málfundafélagsins Fram um kaup garðyrkjufélagsins á spildu á fitjunum neðan við Reykjarhólsgarð fyrir sundlaugarstæði, dagsett 23. júní 1912. Einnig er í bókinni tilkynning til félagsmanna og auglýsing um kartöflur til sölu í Reykjahólsgarðinum. Ein fundagerð er í bókinni, dags. 3. maí 1925 og reikningar félagsins f. árið 1926. Í bókinni eru tvö skjöl: a) Listi með nöfnum eigenda hlutabréfa í Garðyrkjufélagi Seyluhrepps, árið 1944. b) Skjal sem kallast Úskrift úr afsals og veðmálabókum Skagafjarðarsýslu. Um er að ræða saming um kaup Guðmundar Guðmundssonar bónda á Reykjarhóli, á spildu á Reykjarhóli, svonefndan Reykjahólsgarð. Skjalið er dagsett 27. ágúst 1920.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, tvær skrifaðar síður, undirritaðar af Árna Jónssyni. Svör eru rituð aftan við, undirrituð af Sigurði Jónssyni. Tillögur þar aftan við, undirritaðar af nefndarmönnum.
18 ársreikningar, handskrifaðir á blöðum í A3 stærð sem eru brotin í folio broti, inni í þeim eru bókhalds fylgigögn. Skjölin eru að mestu í góðu ásigkomulagi en talsvert hefur rifnað og er mjög viðkvæmt viðkomu.
1 handskrifuð og læsileg bók með ársreikningum búnaðarfélagsins, tímabilið 1959-1982. Bundin í þykkum pappa, bókin er í góðu ástandi. Kjölurinn er límdur. Pappírsgögn eru handskrifuð, að mestu í góðu ástandi og hafa varðveist ágætlega en nokkuð er um að skjölin séu rifin.