Keppendur f.v. (Brynleifur) Kári Steinsson (með bikarinn) og Marinó Sigurðsson. Valgarð Blöndal vinstar megin með gleraugu. Sigurður Sigurðsson (sýslumaður) t.h. með gleraugu. Keppt í Grettissundi í Varmahlíð.
Frá haustheimsókn í Varmahlíð árið 1942 - frá vinstri Eggert Ólafsson - Gísli Gíslason - Sigurþór Hjörleifsson - Gísli Kolbeinsson - Hjálmar Eiðsson - Jóhannes Haraldsson og Gunnar Gunnarsson.
Handskrifuð, vélrituð og ljósrituð pappírsgögn, m.a. formlegt erindi til hreppstjórnar Seyluhrepps, samningur um húsnæði, lög foreldrafélagsins. Gögnin eru öll vel varðveitt.
Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. Drengirnir Sigurður Örn Hilmarsson (t.v.) og Sigurður Sigurðsson eru barnabörn Sigurðar og afhjúpuðu þeir minnisvarðann.
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, en þeir afhjúpuðu minnisvarðann þá sr. Gunnar Gíslason, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, óþekktur og Þórarinn Sólmundarson.
Birgir Guðjónsson og Monika Sóley Borgarsdóttir með farsímaveski sem fyrirtækið Click on Island hóf framleiðslu á árið 1999. Birgir var framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Frá vinstri Jóna Guðrún Gísladóttir (1944), Jófríður Tobíasdóttir (1939-) og Björgvin Jónsson (1929-2000). Frá skemmtun Rökkurkórsins í Miðgarði. (Hugsanlega 20 ára afmælisfagnaður kórsins vorið 1999).
Ásgeir Eiríksson er mikill og djúpur bassi og talinn ákaflega efnilegur söngvari. Hér syngur hann einsöng með Rökkurkórnum á skemmtun kósins í Miðgarði á annan í jólum 1992.
Sigurjón Jóhannesson og Margrét S. Stefánsdóttir syngja í fagnaði í Hótel Varmahlíð í ágúst 1993, þar sem fagnað er heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur sem hefur verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Jafnframt er fagnað stækkun og endurbótum á hótelinu.
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Hótel Varmahlíð fagnað í ágúst 1993 en hún hafði verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Þá var jafnframt verið að opna hótelið eftir endurbætur og stækkun. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Rós Indriðadóttir (1969-), Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir (1968-) og Gróa Hreinsdóttir (1956-) leikur á hljófærið.
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Hótel Varmahlíð fagnað í ágúst 1993 en hún hafði verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Á meðan hún var fjarverandi hafði verið lokið við stækkun og endurbætur hótelsins. Við píanóið er Gróa Hreinsdóttir (1956-), söngkonurnar eru til vinstri: Helga Rós Indriðadóttir (1969-) og Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir (1968-).
Veirurnar, sönghópur ungs fólks í Skagfirsku söngsveitinni, tekur lagið á minningartónleikum um Jóhann Pétur Sveinsson í íþróttahúsinu í Varmahlíð í október 1995.
Frá minningartónleikum um Jóhann Pétur Sveinsson í íþróttahúsinu í Varmahlíð í október 1995. Hér er söngsveitin Drangey að syngja undir stjórn Snæbjargar Snæbjarnardóttur (1932-) við undirleik Vilhelmínu Ólafsdóttur (1948-).
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi vestra. Undirleikari er Ólöf Pálsdóttir frá Bessastöðum á Heggstaðanesi. Harmonikkuleikari er bróðir hennar, Þorvaldur bóndi á Bjargi í Miðfirði. Aftari röð f.v.: Jón Böðvarsson, Páll Sigurðsson, Jón Hilmar Karlsson og Björn (var oddviti í Ytri-TOrfustaðahreppi). Fremri röð f.v.: Þorvaldur, Böðvar Sigvaldason, Eggert Antonsson og Sverrir Björnsson í Brautarholti.