Umslag utan af bréfi til Þórarins Jónssonar frá Karlottu Jóhannsdóttur vegna umsóknar hennar um kennslustöðu við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Bréfið er stimplað í Kaupmannahöfn - Danmörku 4. ágúst 1937 og er með tveimur dönskum frímerkjum.
Safn sem byggist á bréfaskrifum milli Stefönu við frænda hennar óperusöngvarann Stefán Íslandi, þau áttu í bréfaskrifum um 35 ára skeið eða frá því að hann fór utan til söngnáms í Genova á Ítalíu 1930 og allt til ársins 1965 er hann bjó og starfaði í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma nam Stefán og starfaði lengi á Ítalíu og svo síðar er hann hóf störf hjá Konunglegu óperunni í Kaupmannahöfn. Í safninu, auk sendibréfanna eru handskrifaðar jólakveðjur, nafnspjöld og skeyti. Einnig efnisskrá tónleika sem Stefán og Else Brehms héldu í Reykjavík ásamt undirleikaranum Fritz Weisshappel og skáldsaga sem er merkt Stefáni. Í safninu voru tveir myndarammar, í þeim voru tvær myndir - önnur þeirra pappírskópía var sett í viðeigandi plastvasa ásamt öðrum litmyndum sem voru í safninu. Hin myndin var úrklippa úr tímariti eða blaði með mynd af Stefáni, sú mynd var grisjuð úr safninu. Ákveðið var að halda myndarömmunum áfram í safninu. Allt safnið er ágætlega varðveitt.
Gögn sem varða ráðningu Karlottu Jóhannsdóttur sem kennara við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Um er að ræða bréf varðandi námsárangur hennar og frammistöðu við tvo handavinnuskóla í Damörku og einni vinnustofu. Einnig fylgir umsögn Kristínar Símonardóttur á Kolkuósi um störf Karlottu og hæfileika sem sent var til Þórarins Jónssonar á Hjaltabakka í Húnavatnssýslu en hann var skólaráðsformaður við Húsmæðraskólann á Blönduósi og tók við umsóknum varðandi ráðningu í kennslustöður við skólann.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir (1840-1909) Bæ á Höfðaströnd Skag- kona Konráðs Jónssonar og sonarsonur hennar Konráð Jónsson (1901-1955)- síðar kaupmaður í Kaupmannahöfn og Reykjavík.
Titill: Edda Sæmundar hinns fróda = Edda rhythmica seu antiqvior, vulgo Sæmundina dicta. Edda á íslensku og latínu. Skúli Þórðarson Thorlacius ritaði inngang (á latínu) en Gyldal gaf bókina út árið 1787 í Höfn.