Viðtal við séra Eirík Albertsson, Reykjavík. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970. Eiríkur segir frá æsku sinni og uppruna, en hann ólst upp í Torfmýri og Flugumýrarhvammi í Blönduhlíð. Segir einnig frá samferðafólki í Blönduhlíð. Einnig spjallað um prestsskap Eiríks en hann var einnig bóndi á Hesti í Borgarfirði og skólastjóri á Hvítárbakka. Einnig rætt um bók Eiríks sem byggir á doktorsritgerð hans. Eiríkur segir frá tildrögum þess að hann lagði fyrir sig guðfræði og trúmál almennt.
Ólafur Þórarinsson sækir um byggingarleyfi fyrir vélageymslu í Flugumýrarhvammi. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins og Sigurður Sigvaldason verkfræðingur gerði styrkleikateikningu. Umsókn dagsett 06.06.1981. Teikningar fylgja ekki