Sigurður Egilsson tekur viðtal við Hjálmar Sveinsson, Syðra-Vatni. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Hjálmar fæddist á Giljum í Vesturdal og ólst upp fyrstu árin. Hann bjó þar síðar á fullorðinsárum, einnig á Þorljótsstöðum og Syðra-Vatni. Hjálmar ræðir um góðæri á 3. og 4. áratugnum. Rætt um búskap Hjálmars, landbúnað, trúmál, tungumálið, skáldskap og fleira.
Sitjandi f.v. Kristín Þorsteinsdóttir, kona Hjálmars Þorlákssonar á Þorljótsstöðum og Monika Indriðadóttir, Vindheimum. Milli þeirra stendur Steinunn Hjálmarsdóttir frá Þorljótsstöðum.
Sitjandi f.v. Kristín Þorsteinsdóttir, kona Hjálmars Þorlákssonar á Þorljótsstöðum, Monika Indriðadóttir Vindheimum. Milli þeirra stendur Steinunn Hjálmarsdóttir frá Þorljótsstöðum.