Afrit af bréfum Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu til ýmissa aðila. 18 handskrifuð bréf frá árunum 1977-1979 sem undirrituð eru af Heiðmari Jónssyni. 55 vélrituð bréf frá árunum 1979-1981 sem undirrituð eru af Knúti Ólafssyni og Ófeigi Gestssyni. Ófeigur virðist hafa verið formaður skólanefndar skólans. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á 2 pappírarkir í A4 stærð. Það varðar gjöf Guðrúnar Björnsdóttur og Þormóðs Eyjólfssonar til til söngskólastofnunar í Varmahlíð. Ástand skjalsins er gott.
Bréf Búnaðarbanka Íslands til Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 1 bréf, dagsett í mars 1978. sem varðar bókun ávísana og hlaupareikninga. Ástand skjalsins er gott.
Bréf Félags íslenskra hljómlistarmanna til Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 1 bréf frá 12.09.1979 sem varðar inntökugjald í félagið. Ástand skjalsins er gott.
Bréf Félagsmálaráðuneytisins til Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 2 bréf frá árinu sem varða atvinnuleyfi fyrir erlenda starfsmenn. Ástand skjalsins er gott.
Bréf Innheimtustofnunar sveitarfélaga til Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 5 bréf frá árunum 1979-1982 sem varðar innheimtu meðlagsgreiðslna. Ástand skjalsins er gott.
Bréf Skólanefndar Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu til gjaldkera Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 1 bréf frá janúar 1979 sem varðar kjarasamning. Ástand skjalsins er gott.
Nokkrar fundargerðir: Fundargerð skólanefndar frá 3.12.1978 og varðar skilgreiningu á störfum skólastjóra og gjaldkera. Fundargerð skólanefndar frá 23.02.1987 varðandi ýmis mál Fundargerð Tónlistarskóla Skagafjarðar frá 14.09.1987. Fundargerð Tónlistarskóla Skagafjarðar frá 01.11.1987. Fundargerð Tónlistarskóla Skagafjarðar frá 20.01.1990. Oddvita og skólanefndarfundur frá 15.11.1983 Endurrit úr gerðabók sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og varðar erindi Knút H. Ólarfssonar varðandi lífeyrisréttindi. Ástand skjalanna er gott.
Gjafabréf Eyþórs Stefánssonar til Tónlistarskóla Sauðárkróks. Eyþór gefur 1.000.000 króna til sjóðsstofnunar sem átti að "þjóna því markmiði að styrkja þá nemendur skólans, er hyggja á framhaldsnám í hljóðfæraleik eða söng, eftir að hafa lokið tilskyldum prófum við skólann."
Mynd tekin í Bifröst, hugsanlega á fyrstu tónleikum Tónlistarskólans á Sauðárkróki 1965. Guðni Friðriksson spilar á melodiku. Við orgelið eru Stefán Evertsson (nær) og Ingibjörg Jónasdóttir. Stúlkur úr árgangi 1954 sitja fremst. Þriðja f.v. er Svava Ögmundsdóttir og t.h. við hana Helga Valdemarsdóttir. Milli Svövu og Helgu er Karlotta Evertsdóttir. Aðrir óþekktir.
Tilgáta: Myndin er tekin á fyrstu tónleikum Tónlistarskólans á Sauðárkróki 1965. Sjá mynd nr 137. Sveinn Árnason frá Víðimel spilar á orgelið, fjær eru sennilega Jón Steinbjörnsson og Ingibjörg Jónasdóttir. Í fremri röð er Svava Ögmundsdóttir fjórða f.v. og Helga Valdimarsdóttir fimmta, aðrar óþekktar. Í aftari röð eru f.v. óþekkt, Karlotta Evertsdóttir, Kristín Ögmundsdóttir, Svava Hjaltadóttir, Dagur Jónsson, óþekktur og Stefán Evertsson.
Eyþór Stefánsson (1901-1999) ásamt nemendum Tónlistaskólans á Sauðárkróks. Skólinn tók til starfa árið 1965 og var Eyþór fyrsti skólastjóri skólans. Eva Snæjbarnardóttir er t. h. en hún varð síðar skólastjóri Tónlistaskólans (1974). Myndin er hugsanlega tekin á fyrstu skólaslitum skólans.
Mynd tekin í Bifröst, sennilega á fyrstu tónleikum Tónlistaskólas á Sauðárkróki árið 1965. T.v. með meloódikuna Helga Valdimarsdóttir, hin er hugsanlega Þórdís Jónasdóttir. Fjær við orgelið er Anna Hjaltadóttir, sú nær er óþekkt. Sjá myndir 137 og 144.
Myndin tekin í Bifröst sennilega þegar Tónlistaskólanum á Sauðárkróki var slitið í fyrsta sinn vorið 1965. Eyþór Stefánsson (1900-1999) á sviði ásamt nemendum tónlistaskólas - Eva Snæbjarnadóttir situr lengst til hægri. Eyþór var fyrsti skólastjóri skólans, en seinna varð Eva skólastjóri.
Gögn varðandi lög og reglur: Lög um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nr. 29/1963 Lög um starfskjör launþegar o.fl. nr 9 frá 14. mars 1974 Lög um fjárhagsnlegan stuðning við tónlistarskóa nr 22/1975.
Rekstaryfirlit Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu 1. janúar til 30. september 1987 og efnahagsyfirlit 3ö. september 1987. Vélritað í A4 stærð. 7 síður. Ástand skjalsins er gott.
Tveir ráðningarsamningar, milli Tónllistarskólans og Einars Schweiger og _Önnu Jónsdóttur. Þeir eru óundirritaðir. Með liggur tillaga að starfsreglum fyrir skólastjóra Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu.
Gjafabréf Eyþórs Stefánssonar til Tónlistarskóla Sauðárkróks. Eyþór gefur 1.000.000 króna til sjóðsstofnunar sem átti að "þjóna því markmiði að styrkja þá nemendur skólans, er hyggja á framhaldsnám í hljóðfæraleik eða söng, eftir að hafa lokið tilskyldum prófum við skólann."
Ýmis gögn sem tilheyra rekstri Tónlistarskóla Skagafjarðar. M.a. bókhaldsgögn, nemendalistar, lög og reglur, kjarataxtar og launatöflur, fundargerðir o.fl. Gögnin voru afhent til safnsins 25.09.2003. Með liggja gögn sem voru án afhendingardags, en spanna sama tímabil.