Boðsbréf frá Iðnsveinafélagi Skagafjarðar vegna 25 ára afmælis félagsins. Líklega til Erlendar Hansen. Í bréfinu kemur fram að viðtakdandi hafi verið einn af 13 stofnfélögum félagsins. Bréfið er undirritað af Halli Sigurðssyni, formanni félagsins.
Brúðkaupsmynd. Bruno Schwiezer og Þorbjörg Jónsdóttir. Tekin að Laufásvegi 18 Reykjavík á heimili Elíasar Bjarnasonar og Pálínu Elíasdóttur í ágúst 1938.
Nýársfagnaður eldri borgara í Bifröst (í janúar 1997). Við borðið næst t.v. Tryggvi Guðlaugsson t.h. og Jakob Maríus Sölvason (1917-1994) - Við borðið fjær f.v. Hulda Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir (1922-) - Hólmfríður Jónsdóttir - Erna Jónsdóttir og á móti henni er Helga Jónsdóttir og Pétur Guðjónsson frá Hrauni í Sléttuhlíð. Við hliðina á Pétri (nær) Hulda Gísladóttir. Við borðið t.h. er Karla Berndsen fyrir miðju vinstra megin og Stefanía Ástvaldsdóttir nær. Næst hægra megin við borðið er Dagbjört Stefánsdóttir. Aðrir óþekktir.
Skötuveisla í óþekktum bílskúr á Sauðárkróki á Þorláksmessu 1993. T.v. við borðið næst, Jón Anton Alexandersson (1951-), Snjólaug Stefanía Jónsdóttir (1975-), Stefán Kristján Alexandersson (1956-). Til hægri við borðið fjærst, Jóhann Friðberg Sveinsson (1933-), Alexander Róbert Jónsson (1931-) og Tryggvi Þorbergsson (1942-).
Á Hótel Mælifelli. Annar f.v. Rúnar Bachmann og Haraldur J. Haraldsson (Andra) lengst t.h. aðrir óþekktir, sennilega í barraveislu, sem fiskeldisfyrirtækið Máki stóð fyrir haustið 1996.
Sameiginlegt þorrablót vistmanna og starfsfólks á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu á Sauðárkróki í febrúar 1989. Þekkja má Björn Egilsson frá Sveinsstöðum vinstra meginn við borðið og Óskar Stefánsson næst hægra megin.
Næstu 10 myndir þ. e. 18 til 28 eru frá opnun sjálfvirkrar símstöðfar í húsi Pósts og síma á Sauðárkróki í apríl 1968. Svæðisnúmer stöðfarinnar var 95. Forráðamenn Pósts og síma buðu fréttamönnum og gestum til fundar í Bifröst. Þar töluðu Jón Skúlason forstjóri símtæknideildar, Maríus Helgason umdæmisstjóri, Guðjón Ingimundarson, Friðrik Friðriksson læknir og Jóhann Salberg sýslumaður. Þorvarður Jónsson Yfirverkfræðingur lýsti svo stöðinni á staðnum, Fyrsta símtalið í hinni nýju stöð átti Jóhann Salberg sýslumaður við Gunnlaug Briem Póst- og símamálastjóra. Stöðfarstjóri hinnar nýju símstöðfar var Stefán Ólafur Stefánsson. Á myndinni talar Maríus Helgason umdæmisstjóri í Bifröst.
Sjá no 18. Á svölunum í Bifröst. Borðið næst f.v. Hulda Tómasdóttir, óþekkt (sér á bak), Dóra Þorsteinsdóttir, Elísabet Kemp, (Ingibjörg Jónasdóttir) (sennilega símastúlkur) og fjær Gestur Þorsteinsson.
Sjá no 18. Bifröst. F.v. (Hulda Sigurbjörnsdóttir), Guðbrandur Frímannsson, Jóhann Salberg sýslumaður, Guðjón Ingimundarson, Maríus Helgason umdæmisstjóri og Guðjón Sigurðsson.
Kaffisamsæti. Tilefni og staðsetning óþekkt. Á myndinni má þekkja Þorbjörn Árnason (með gleraugu, blómapottur á veggnum fyrir ofan hann) og Ómar Kjartasson (með dokkt hár og rendur á peysuermi).