Laus skjöl úr Reikninga- og viðskiptamálabók Unglingaskólans á Sauðárkróki á tímabilinu 1911-1946. Meðal annars kvittanir, reikningar, úrklippur og minnisblöð.
Handskrifað aftan á blað sem rifið hefur verið af fjölrituðu skattmati. Á skjalinu er yfirlit yfir fundarsetu stjórnarmanna í Samvinnufélagi Fljótamanna árið 1965, ritað af Hermanni Jónssyni.
Níu pappírskjöl í ýmsum stærðum. Minnisblað og reikningar vegna útfararkostnaðar Jónínu Jónsdóttur. Skjöl 4- voru límd saman með límbandi og strimill úr reiknivél límdur við.
25 pappírsskjöl sem varða rafmagns- og eldsneytiskostnað við byggingu bryggju í Haganesvík.Reikningarnir koma frá ýmsum aðilum og eru stílaðir á Hafnarsjóð Haganeshrepps. Einnig umslag sem merkt notað hefur verið til að sundurgreina kostnaðarliði við framkvæmdirnar.
79 pappírsskjöl sem varða síma- og burðagjaldskostnað við byggingu bryggju í Haganesvík.Reikningarnir koma frá ýmsum aðilum og eru stílaðir á Hafnarsjóð Haganeshrepps. Einnig umslag sem merkt notað hefur verið til að sundurgreina kostnaðarliði við framkvæmdirnar.
12 pappírsskjöl sem varða verkstjórnarkostnað við byggingu bryggju í Haganesvík.Reikningarnir koma frá ýmsum aðilum og eru stílaðir á Hafnarsjóð Haganeshrepps. Einnig umslag sem merkt notað hefur verið til að sundurgreina kostnaðarliði við framkvæmdirnar.