Jórunn Sigurðardóttir (1926-2015) skrifar föður sínum. Jórunn var gift Frosta Gíslasyni (1926-2001). Þau bjuggu á Frostastöðum í Akrahreppi. Jórunn var kölluð Nunna.
Jón Dal Þórarinsson (1911-1997) var búfræðingur og bóndi í Efra-Holti í Tunguhlíð og einnig á Efra Lýtingsstaðakoti. Hann bjó seinast í Reykjavík. Kona hans var Sigurveig Jóhannesdóttir (1915-2005).
Bréf Ísleifs Gíslasonar. Bréfin eru til Braga Kristjónsssonar, Valgerðar Kristjónsdóttur og Jóhönnu Kristjónsdóttur. Bragi afhenti Hannesi bréfin þann 9. maí 2015. Með bréfunum er kveðskapur.
Bréf Innheimtustofnunar sveitarfélaga til Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 5 bréf frá árunum 1979-1982 sem varðar innheimtu meðlagsgreiðslna. Ástand skjalsins er gott.
Ingvar Sigurðsson skrifar Magnúsi. Ath. Ingvar skrifar frá Móeiðarhvoli að mestu. Aftast í safninu er bréf undirskrifað af Ingvari H. Sigurðssyni, Glaumbæ. Um er að ræða Hjálmtý Ingvar Sigurðsson (1910-1979) en hann tók upp nafnið Hjálmtýr, breytti því síðan í Hallgrímur Ingvar Thorlacius. Ekki er á hreinu hvort um er að ræða þann sama og skrifar frá Móeiðarhvoli.
2 bréf frá Ingunni Árnadóttir. Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar. Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Hússins á Eyrarbakka (Byggðasafn Árnesínga). 1 pappírsörk í A4 stærð. Með liggur spjald frá Húsinu. Varðar móttöku safngripa. Ástand skjalsins er gott.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Húsafriðunarnefndar. 22 pappírsarkir í A4 stærð. Varðar Tyrfingsstaðaverkefnið og ferniseringu á timburgólfi í Áshúsi. Ástand skjalsins er gott.