Showing 16 results

Archival descriptions
Grunnskóli Akrahrepps: Skjalasafn Item
Print preview Hierarchy View:

Barnafræðsluskýrslur 1920-1966

Barnafræðsluskýrslur árin 1920-1966. Ritið er 81 bls auk kápu og er heftað og kjallímt, A4 stærð. Það er gefið út af Hagstofu Íslands og er hluti af hagskýrslum, aukaflokki nr 1.

Skólaskrifstofa Skagfirðinga

Bréf Héraðsskjalasafns Skagfirðinga til Akraskóla

Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, bréfsefni safnsins. Það varðar vöðtöku á gögnum sem skólinn afhenti safninu í júní árið 1993. Með liggur listi yfir gögn afhent árið 1988 frá héraðsskjalaverði og listi yfir gögn afhent árið 1999 frá skólastjóra.

Grunnskóli Akrahrepps

Bréf Marius Fleisher til Akraskóla

Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fróðleik um Grænlenska jólasveininn. Með liggur upplýsingablað á grænlensku og dönsku, ásamt faðir vor á dönsku.

Marius Fleisher, Grænlandi

Kennaraskrá 1996-1997

Skráin er 15 tölvuprentaðar síður í A4 stærð. Um er að ræða drög. Í skránni eru taldir upp kennarar í grunnskóum í Skagafirði skólaárið 1996-1997 og hvaða námsgreinar þeir kenna.

Skólaskrifstofa Skagfirðinga

Námsumhverfi og samskipti framvinduskýrsla

Skýrslan, sem fjallar um framvindu verkefnisins Námsumhverfi og samskipti er 16 fjölritaðar síður, auk kápu. Hún er tekin saman af umsjónarmönnum verkefnisins, sem framkvæmt var af skólastjórum og kennurum í Skagafirði.

Skólaskrifstofa Skagfirðinga

Sjálfstæði, stýring og samvinna

Skýrslan, sem fjallar um skólastjórnun í Skagafirði, virðist vera námsverkefni höfundar, M. Allyson MacDonald. Hún er þýdd af Hjördísi Gísladóttur. Hún er 22 fjölritaðar síður, auk kápu.

M Allyson McDonald

Skólaskýrsla 1977-78

Skýrlsan er gefin út af Fræðsluskrifstofunni á Blönduósi. Hún inniheldur upplýsingar um starf grunnskóla á Norðurlandi vestra skólaárið 1977-1978. Skýrslan er 16 bls í A4 stærð, auk kápu, heftuð og kjallímd.

Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra

Skólaskýrsla 1978-79

Skýrslan er gefin út af Fræðsluskrifstofunni á Blönduósi. Hún inniheldur upplýsingar um starf grunnskóla á Norðurlandi vestra skólaárið 1978-1979. Skýrslan er 43 bls í A4 stærð, auk kápu, heftuð og kjallímd.

Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra