Showing 536 results

Archival descriptions
Guðlaug Arngrímsdóttir: Skjalasafn Item
Print preview Hierarchy View:

428 results with digital objects Show results with digital objects

Afsal Arngríms Sigurðssonar

Afsal Arngríms Sigurðssonar til Þóris og Guðlaugar. Með þessu bréfi afsalar hann til Þóris 1/3 hluta úr eignarjörð Litlu-Gröf í Staðarhreppi og 1/3 hluta úr eignarjörðinni Litlu-Gröf í Staðarhreppi til Guðlaugar.
Undir skjalið skrifa tveir vottar og sýslumaðurinn sem er Stefán Sigurðsson.

Alþingisrímur (1899-1901) / Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi

Þórir Arngrímsson bróðir Guðlaugar batt inn bækur. Hér hefur hann steypt saman annarsvegar Alþingisrímur (1899-1901) sem Valdimar Ásmundsson gaf út og hinsvegar Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi eftir Edward Knutzen, Theodór Árnason íslenskaði.

Alþingisrímur (1899-1901). Prentað í Ísafoldarverksmiðju, Reykjavík 1902. Þetta eru 14 rímur á 98 blaðsíðum.
Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi er 55 blaðsíður.Prentsmiðjan Gutenberg.

Bréfritari: Elsa

1 handskrifað bréf frá Elsu. Nafn viðtakanda ekki skrifað á bréfið.
Við afhendingu á bréfinu var miði innan í því. Hann fylgir hér með. Miðinn er til Guðlaugar.

Bréfritari: F.B.A

Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Það er skrifað á Akureyri 03.09.1920.
Bréfið er undirritað á tvenna vegu. Annarsvegar F.B Arngrímsson og hinsvegar F.B.A
Þetta gæti mögulega Frímann B. Arngrímsson.

Bréfritari Janis Johnson

Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002.
Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri.
Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.

Bréfritari: Jón Sig

4 bréf ljósrituð á tvö blöð. Þetta eru bréf til Þóris frá Jóni Sig. Innihald bréfana sýna deilur á milli þeirra vegna mjólk sem sótt er frá Þóri til Mjólkursamlagsins.

Bréfritari Laufey

Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba.
Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966.
Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973

Bréfritari: Sigríður Benediktsdóttir

Bréfið er líklega skrifað til Arngríms eiginmanns hennar. Inni í samanbrotnu bréfinu var hárlokkur í teygju. Bréfið er skrifað þegar hún var að fara að leggjast inn á Landakotsspítala í aðgerð. Hún nefnir m.a að ef hún skyldi ekki snúa aftur úr aðgerðinni að þá vilji hún vera jarðsett heima. Hún biður hann einnig um að reynast móður sinni Þorbjörgu Árnadóttur vel og ekki aðskilja hana og son þeirra Þóri ef komist er hjá því. Bréf skrifað 12/9, ekkert ártal. Þetta er líklega á milli 1923-1929.
Hárlokkurinn tókum við úr bréfinu og settum í sér öskju.

Bréfritari Sólveig Arnason

Bréf frá Sólveigu Arnason, 18 ára. Sent frá Akra, Norður Dakótu.
Það kemur ekki fram á bréfi á hvern það er stílað en það kemur fram að það er til frænku. Skrifað á íslensku. Skrifar frá daglegu lífi og aðeins um minningar frá Íslandi

Brunabótasjóður og fleira

Á kápunni á stílabókinni stendur brunabótasjóður og innan í bók er að finna iðgjöld ýmissa bæja.
Í bókinni er einnig að finna mál ótengd brunaiðgjöldum. Útreikningar á Graskögglum, kálfamjólk, júgurfeiti og fleira sem tengist búskap.

Búfjárfræði

Skrifað er á fremstu blaðsíðu: Búfjárfræði. Kend af Birni Símonarsyni. Veturinn 1943-1944. Rituð upp af Þóri A. Arngrímssyni frá Litlu-Gröf Skagafirði.

Erfiljóð. Ingibjörg Jakobsdóttir

Ingibjörg Jakobsdóttir fædd 31. apríl 1887, látin 21. mars 1916. Samkvæmt íslendingabók var hún á Hreðarvatni, Hvammssókn, Mýr. 1890. Tökustúlka á Akureyri, Eyj. 1901. Var á Akureyri 1910.

Heftið er prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar.

Erfiljóð kveðið af Hjálmari Jónssyni kenndur við Bólu

Sólmyrkvi, ortur við fráfall systranna Kristínar, Sesselíuu og Hólmfríðar Benediktsdóttur frá Hólum. Kveðið af Hjálmari Jónssyni.
Þær létust allar 1837.
Kristín Benediktsdóttir fædd 30.04.1833, látin 10.10.1837
Hólmfríður Benediktsdóttir fædd 26.02.1824, látin 28.11.1837
Sesselja Benediktsdóttir fædd 25.07.1821, látin 20.10.1837

Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815

Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815. Orktar af sjera Þórarni Jónssyni, fyrrum presti að Múla í þingeyjarsýslu. Útgefendur Jónas Jónsson. Vigfús Sigurðsson. Akureyri 1853. Prentaðar í prentsmiðju norður- og austur-umdæmisins af Helga Helgasyni.

Herópið. Blaðaúrklippa

Herópið er árlegt rit Hjálpræðishersins. Þetta er forsíðan af blaðinu sem kom út í júní 1917, nr 12, 22 árg. Aftan á henni eru tvær greinar. Annarsvegar "Endurminning" eftir kapt. Kristian Johnsen og hinsvegar "Kveðja frá Akureyri" eftir R. Nielsen, adjutant.

Hjónavígslubréf

Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10.
Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.

Íslenzk stafsetningarorðbók

Íslenzk stafsetningarorðbók. Björn Jónsson hefir samið að tilhlutun Blaðamannafélagsins. Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1900.
Á fremstu blaðsíðu er bókin merkt með penna Tómasi Skúlasyni Ytra-Vatni og Arngrími Sigurðssyni

Já eða Nei - Vísnaþáttur

Já eða Nei - Vísnaþáttur. Stjórnandi Sveinn Ásgeirsson Hagfræðingur.
Braglistarmenn: Guðmundur Sigurðsson, bókari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Karl Ísfeld, rithöfundur og Steinn Steinarr, skáld. Útgefandi: Steindórsprent H.f.
61 blaðsíða auk auglýsinga

Kort af Reykjavík og Seltjarnarnesi

Kort af Reykjavík og Seltjarnarnes. Teiknað hefur Ágúst Böðvarsson eftir uppdráttum bæjarins og eigin mælingu 1947. Endurskoðað 1951. Prentað hjá Gæodætisk Institut i Kaupmannahöfn. Utan á korti er auglýsing frá Flugfélagi Íslands h.f og ferðaáætlun Strætisvagna Reykjavíkur.

Meðmælabréf

Meðmælabréf ritað af Rich. N. Braun fyrir Sigríði Benediktsdóttur. Skrifað á dönsku. Undirritað á Akureyri í maí 1918.
Kemur fram að hún hættir störfum vegna aðstæðna sem hafa skapast vegna fyrri heimsstyrjaldar.
2 blöð, annað er autt.

Mynd 04

Aftan á mynd er skrifað frá vinstri: Judy Flamank (dóttir mín), Doris dóttir hennar Svövu, Joyce, Janis (Johnson) dóttir hans George.
Þetta eru ættingjar af Vestur-íslenskum ættum.

Results 1 to 85 of 536