Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Tilg. Synir Maríu Eymundsdóttur og Pálma Jónssonar Huldulandi.
Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður í ræðustól í Grænuklauf á 17. júní 1958. Fjær til vinstri f.v. Marteinn Friðriksson, Árni M. Jónsson og Kristján Linnet Jónsson (Kiddi Bif).
júní 1958. Hátíðarhöld í Grænuklauf. Eyþór Stefánsson í ræðustól. T.v. Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður (dökkklæddur), þá Adolf Björnsson, Friðrik Friðriksson og (tilg.) Áslaug Sigfúsdóttir (í samlaginu).
Sauðárkrókur. Næst vestan Flæðanna eru gripahús. T.v. sundlaugin í byggingu, en hún var tekin í notkun 1957. Mjólkursamlag KS fjær og Sjávarborg í fjarska.
Hús Búnaðarbankans við Faxatorg í forgrunni, kjörbúð KS (ný ráðhúsið á bak við. Vinstra megin suðurgatan og hægra megin Skagfirðingabraut. Sér í barnaskólann efst til vinstri á myndinni.
Guðrún Pálsdóttir ásamt óþekktum manni við skúrabyggðina, sem var þar sem nú er Minjahús Sauðárkróks. Tilgátur um að maðurinn sé Hólmar Friðrik Magnús Magnússon Fæddur á Sauðárkróki 14. október 1914 Látinn 8. júlí 1995 Verkamaður á Sauðárkróki 1930. Fósturforeldrar Þorkell Jónsson og Málfríður Friðgeirsdóttir. Sjómaður í Reykjavík 1945.
Árgangur 1928 ásamt skólastjóra og kennar Barnaskólans á Sauðárkróki. Hugsanlega skólaferðalag. Aftasta röð frá vinstri; (Skráð Sigga Þórðar (Blöndal), Óþekkt, Þorvaldur Guðmundsson kennari, Jón Þorbjargarson Björnsson. Miðröð: Steinunn Aðalehieður Árnadóttir, Aage Michelsen, Magnús Bjarnason kennari og Alda Bjarnadóttir. Fremsta röð frá vinstri; Sigurður Margeirsson, Snorri Sigurðsson, Hjalti Jósafat Guðmundsson og skráning "Bjöggi Skafta". Einnig talið að Aage Michelssen sé á myndinni.
Fyrir utan Sauðárkrókskirkju. Frá vinstri Einar Sigtryggsson, Margeir Sveinn Hallgrímsson Valberg, Ottó Geir Þorvaldsson, Kristján Skagfjörð Jónsson, Jósafat Sigurðsson, Erlendur Hansen, Ingólfur Agnarsson. Skákmenn, mynd tekin við Sauðárkrókskirkju.
Mynd tekin á Sauðárkróki, Sauðáin rennur neðan við Sauðárhæðir. Í baksýn má sjá Esso sjoppurnar, eldri sjoppan nær og nýja fjær. Reiðskóli Ingimars Pálssonar
Halldór "Dóri skó" Stefán Halldór Halldórsson Fæddur í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal, Eyj. 11. nóvember 1880 Skósmiður á Sauðárkróki 1930.
Tilgáta um Jóhann Eiríkur Jónsson Fæddur á Sauðárkróki 19. ágúst 1921 Látinn 20. mars 2004 Var á Siglufirði 1930. Heimili: Sauðárkrókur. Var á Beinakeldu í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Bóni og frjótæknir á Beinakeldu. Síðast bús. þar.
Svartahúsið við Aðalgötu 16b. óþekktar konur en við myndina stendur ábúendur í Svartahúsinu eru Guðmundur Sigvaldsson (verkamaður í norðurenda) og Valdimar (jónsi) sjómaður í suðurenda.
Mynd tekin rétt sunnan við Sauðárkrókskirkju út Aðalgötu. Mynd sennilega tekin að vori. Gamlibarnaskólinn til hægri. Hann var fyrst starfræktur á þessum stað í lok árs 1908 og varð Jón Þ. Björnsson skólastjóri. Jón reyndist einn mikihæfasti skólamður landsins og setti mjög svip sinn á skólastarf á Sauðárkróki um langt skeið.