Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna haldinn í Ljósheimum þann 21. apríl 2002. Meðfylgjandi er bréf til Kvenfélagasambands Íslands. Bréfið er frá stjórn S.S.K. og dagsett 28.04.2002.
Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna haldinn í Ljósheimum 15. apríl 2012. Jóna Ólafía Jónsdóttir, vararitari, skrifar undir fundargerðina. Meðfylgjandi er bréf frá formanni Sambands skagfirskra kvenna, Sigríði Garðarsdóttur. Það er dagsett í Miðhúsum 27. september 2012.
Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna haldinn á Hólum í Hjaltadal, þann 25. apríl 1999. Meðfylgjandi er fundarboð og handskrifaður miði varðandi Guðbjörgu Ingimundardóttur félagsmálastjóra Skagafjarðar, en hún flutti erindi á fundinum.
Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna haldinn að Héðinsminni þann 8. apríl 2000. Meðfylgjandi er fundarboð og formannalisti, ásamt stjórn Sambands skagfirskra kvenna og Orlofsnefnd árið 2000.
Ársskýrsla Kvenfélags Rípurhrepps árið 1993. Handskrifuð undirskrift: Sigrún Hróbjartsdóttir, formaður. Einnig ársskýrsla Kvenfélagins Öldunnar á Hofsósi. Ársreikningur S.S.K. 1993 og tillögublað varðandi 30. landsþings Kvenfélagasambands Íslands á Hótel Loftleiðum 19. - 21. júní 1994.
Ársskýrslur kvenfélaga í Skagafirði árið 1992, en þær skýrslur eru ekki í gögnum Sambands skagfirskra kvenna og því haldið eftir hér. Einnig ársreikningur S.S.K. frá árinu 1992. Ársskýrslur eftirfarandi kvenfélaga: Kvenfélag Skefilsstaðahrepps Kvenfélagið Framför, Skarðshreppi Kvenfélag Staðarhrepps Kvenfélag Seyluhrepps Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps Kvenfélag Akrahrepps Kvenfélag Hólahrepps Kvenfélagið Ósk í Óslandshlíð Kvenfélagið Aldan, Hofsósi Kvenfélagið Hvöt, Fellssókn Kvenfélagið Framtíðin, Fljótum Kvenfélag Sauðárkróks
Ársreikningur S.S.K. 2003. Handskrifaðar undirskriftir endurskoðenda, Sauðárkróki 22.04.2004: Margrét Helena Magnúsdóttir og Engilráð M. Sigurðardóttir.
Fundargerð formannafundar S.S.K. haldinn í Ljósheimum 4. september 2000. Fundargerðin er undirrituð af Helgu Bjarnadóttur, ritara. Meðfylgjandi er bréf frá formanni S.S.K., Sigrúnu Aadnegard, dagsett á Bergstöðum 1. nóvember 2000.
Fundargerð 52. aðalfundar Sambands skagfirskra kvenna, haldinn að Sólgörðum 5. maí 1995. Handskrifuð undirritun: Svanhildur Pétursdóttir, ritari. Meðfylgjandi eru lög Sambands skagfirskra kvenna og breytingatillögur á lögum.
Fundargerð 81. aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna haldinn að Löngumýri í Skagafirði, 11. - 12. júní 1994. Handskrifaðar undirritanir (ljósrit). Meðfylgjandi er listi yfir formenn kvenfélaga í S.S.K. 1994, auk stjórnar S.S.K. og Orlofsnefnd. Einnig heimsóknir kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga. Nafnið Sigrún ritað á það blað. (Líklega Sigrún Hróbjartsdóttir formaður Kvenfélags Rípurhrepps).
Fundur í stjórn S.S.K. haldinn á Kaffi Krók þann 1. desember 2004. Þar mætti einnig Vinnuvökunefnd sambandsins. Meðfylgjandi er bréf frá Ingibjörgu Hafstað, dagsett 15. febrúar 2005.
Listi yfir formenn kvenfélaga í Sambandi skagfirskra kvenna. Einnig stjórn S.S.K. og Orlofsnefnd. Á blaðinu er getið heimsókna kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga yfir árið 1993.
List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973. Á myndinni eru, frá vinstri: Eyborg Guðmundsdóttir Selma Magnúsdóttir Helga Kristjánsdóttir Margrét Ólafsdóttir
List um landið, sýning í Safnahúsinu á vegum S.S.K. 1973. Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhann L. Jóhannesson, Helga Kristjánsdóttir og Jóhann Salberg Guðmundsson.
List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973. Á myndinni eru, frá vinstri: Eyborg Guðmundsdóttir (listakona sem setti upp sýninguna, (höfundar ýmsir)) Helga Kristjánsdóttir Margrét Ólafsdóttir Selma Magnúsdóttir
List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973. Á myndinni má sjá (í forgrunni) Marteinn Friðriksson, Halldór Þ. Jónsson, Jóhann Salberg og Gunnar Sveinsson.
Mynd tekin á afmælishófi í Bifröst 1969. Á myndinni eru, frá vinstri: Svana í Ási Jóhanna S. í Brautarholti Ingibjörg í Flugumýrahvammi Ingibjörg á Mið-Grund Sigríður (ath) María á Húsabakka
Fundur í stjórn S.S.K. ásamt Vinnuvökunefnd haldinn á Kaffi Krók 16. janúar 2007. Meðfylgjandi er bréf undirskrifað af Ingibjörgu Hafstað. Það er dagsett í Vík, 22. janúar 2007.
og 137. fundur í stjórn S.S.K. Fyrri fundurinn var haldinn að Gili 8. febrúar 1995 og sá seinni á sama stað, 11. apríl 1995. Handskrifuð undirskrift: Svanhildur Pétursdóttir, ritari.