Stefán ræðir við Hjört Benediktsson, Marbæli Seyluhreppi (0:00:00 - 0:04:20) Stefán ræðir við Árna Kristmundsson, Hvammkoti (0:04:30-0:05:40) Stefán ræðir við Lúðvík Kemp frá Illugastöðum ( 0:06:00-0:09:30) Stefán ræðir við Stefán Sigurfinnsson, Innstalandi (0:09:35-0:13:45) Stefán ræðir við Baldur Baldvinsson á Ófeigsstöðum (0:14:18-0:15:20) Vantar stundum ýmist framan eða aftan á viðtöl.
Viðtöl við Hjört Benediktsson frá Marbæli, líklega tekið á tímabilinu 1969-1970. Hann var fæddur á Skinþúfu (Vallanesi) og ólst upp þar og á Syðra-Skörðugili fyrstu árin. Rifjaðar upp bernskuminningar, m.a. af leggjum og skeljum. Einnig vinnumennsku og búskap. Hann missti konuna eftir stuttan búskap og nýfædda dóttur. Hjörtur segir frá störfum sínum við bókband sem hann stundaði á Sauðárkróki og störf hans sem safnvörður í Glaumbæ.