Aftari röð frá vinstri: Chr. Popp Sauðárkróki- Pétur Pétursson verslunarmaður- Sigurður Pálsson læknir og Kristján Blöndal Sauðárkróki. Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Einarsson frá Hraunum- Erlendur Pálsson Hofsósi og Stefán Jónsson faktor. Safn Kr.C. Magnússonar Sauðárkróki.
Pétur Jónsson verslunarmaður situr lengst til vinstri. Jón Egilsson verslunarmaður 2.f.v. í miðröð. Sigurður Pálsson læknir situr fremst fyrir miðju og Chr. Popp honum til hægri handar. Jón Ólafur Stefánsson er í miðröð 3.f.v. Aðrir eru ónafngreindir. Myndin er tekin skammt frá Sauðárkrókskirkju. Ljósmynd má finna í Sögu Sauðárkróks á bls. 417.
Mynd tekin við uppboð úr norska seglskipinu Emanuel en hann strandaði 13. september 1906, í sunnan fárviðri á Sauðárkróki og rak upp sunnanvert við Gönguskarðsárnes. Mannbjörg varð.
Sunnan við L. Poppsverslun. Á myndinni eru Christian Popp, Paula Popp og sonur þeirra Louis er á hesetinum, frk. Ingrid Hansen kennslukona og óvíst er um nafn mannsins til hægri.