Viðtöl við Hjört Benediktsson frá Marbæli, líklega tekið á tímabilinu 1969-1970. Hann var fæddur á Skinþúfu (Vallanesi) og ólst upp þar og á Syðra-Skörðugili fyrstu árin. Rifjaðar upp bernskuminningar, m.a. af leggjum og skeljum. Einnig vinnumennsku og búskap. Hann missti konuna eftir stuttan búskap og nýfædda dóttur. Hjörtur segir frá störfum sínum við bókband sem hann stundaði á Sauðárkróki og störf hans sem safnvörður í Glaumbæ.
Börn Valdimars Guðmundssonar í Vallanesi og konu hans, Guðrúnar Jóhannsdóttir : t.v. Eiríkur, bóndi í Vallanesi, f. 1923 og t.h. Herfríður, húsfreyja í Brekku, f. 1920. Myndin er tekin í bernsku þeirra. Ljósmynd : Guðmundur R. Trjámannsson, Akureyri
Kortið er teiknað á pappírsörk i A3 stærð og litað með trélitum. Það sýnir land Vallaness og landamerki við aðliggjandi jarðir. Ástand skjalsins er gott.
Soffía Ólafsdóttir (1865-1924) kona Jóhanns Sigfússonar bónda á Syðri-Húsabakka o.v. (Sk.æv. 1850-90. I - 133) og dóttir þeirra Guðrún Jóhannsdóttir (f. 1898) kona Valdimars Guðmundssonar bónda í Vallanesi.