Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hjaltadals. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hólahrepps. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Frá vinstri: Anna Gunnlaugsdóttir húsfr. á Hofi í Hjaltadal. María Pálsdóttir húsfr. í Vogum í Kelduhverfi. Friðfríður Jóhannsdóttir húsfr. í Hlíð í Hjaltadal
Frá vinstri: Þórarinn Már Þorarinsson Vogum í Kelduhverfi. Sigurður Pálsson frá Hofi í Hjaltadal, lögreglumaður í Reykjavík. Í baksýn Hof II í Hjaltadal.
Sigríður Guðmundsdóttir Víðinesi í Hjaltadal. Efst er Sigurlaug Pálsdóttir frá Laufskálum, fremst frá vinstri eru svo: María Pálsdóttir frá Hofi, Sigurður Pálsson frá Hofi og Trausti Pálsson frá Laufskálum.
Efst frá vinstri: Páll Sigurðsson, bóndi á Hofi í Hjaltadal. Þórarinn Þórarinsson, bóndi í Vogum í Kelduhverfi. Fremst frá vinstri: Anna Gunnlaugsdóttir húsfr. á Hofi í Hjaltadal. Jóhanna Þórarinsdóttir húsfr. í Vogum í Kelduhverfi.
Efst frá vinstir: María Pálsdóttir húsfr. í Vogum í Kelduhverfi. Páll Sigurðsson bóndi á Hofi í Hjaltadal.. Fremst frá vinstri: Anna Þórarinsdóttir. María Guðmundsdóttir frá Lundi í Stíflu. Þórarinn Már Þórarinsson Vogum í Kelduhverfi.
Listinn er handskrifaður á tvær pappírsarkir í folio broti, alls átta síður. Hann nær yfir hluti sem keyptir hafa verið í safnið, óljóst er á hvaða tímabili. Listinn er sundurliðaður eftir bæjum. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er handskrifaður á þrettán pappírsarkir í stærðinni 22.8 x 13,7 cm. Hann er sundurliðaður eftir frá hvaða bæjum munirnir eru keyptir. Ástand skjalsins er gott.