Jarðaför Salome Pálmadóttur. Líkmenn: Fjær fremstur Þorvaldur Þorvaldsson, þá Jón Þ. Björnsson og aftastur er Sigurður Þórðarson Egg (sést ekki). Nær fremstur Svavar Þorvaldsson og aftastur Daníel Glad. Á eftir kistunni önnur frá vinstri Hulda Jónsdóttir og þorvaldur Guðmundsson við hlið hennar. Lengst t.h. Haraldur Júlíusson (með húfu)
Jarðaför Ólínu Jónasdóttur (frá Miklabæjarkirkju). Líkmennirnir nær eru, framan frá Bjarni Halldórsson, Uppsölum, Stefán Jónsson frá Höskuldsstöðum og Gísli Gottskálksson, Sólheimagerði. Líkmenn fjær óþekktir (1956).
Útför Salóme Pálmadóttur frá Sauðárkrókskirkju árið 1957. Fremstu líkmenn eru Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) t.v. og Svavar þorvaldsson (Daddi) t.h. Jón Þ. Björnsson er aftan við Búbba og Daníel Glad er aftastur fjær. Þorvaldur Guðmundsson maður Salóme er í tröppunum t.v.
Jarðaför Salóme Pálmadóttur (1884-1957) frá Sauðárkrókskirkju. Fremstu líkmenn eru synir hennar Þorvaldur (Búbbi) fjær og Svavar (Daddi) nær. Aftari líkmaður fjær er Jón Þ. Björnsson og aftasti nær er Daníel Glad. Þorvaldur Guðmundsson maður hennar er í miðri röð næst kistunni.
Jarðaför Þorvaldar Guðmundssonar kennara á Sauðárkróki í október 1961. Prestur er sr. Þórir Stephensen. Unglingarnir á undan líkfylgdinni eru. Stúlkurnar fjær Sigríður Guttormsdóttir (fánaberi) Brynja Harðardóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir (á bak við fánann) og Heiðrún Friðriksdóttir. Drengirnir nær Ólafur Guðmundsson (fánaberi), Árni Ragnarsson, Valgarð Valgarðsson og Gylfi Ingason. Líkmenn eru, fjær Guðjón Ingimundarson, Gísli Felixson og Friðrik Margeirsson og nær Marteinn Steinsson, Björn Daníelsson og Árni Þorbjörnsson. Líkfylgdin á leið til kirkju að lokinni húskveðju að Aðalgötu 9, heimili Þorvaldar.
Sjá mynd 2752. Kistan borin úr Sauðárkrókskirkju. Líkmenn sjá mynd 2755. Næst til vinstri eru Ingimundur Bjarnason jarnsmiður og Sveinsína Bergsdóttir.
Jarðarför Péturs Hannessonar frá Sauðárkrókskirkju (1960). Líkmenn. Fjær Ólafur Stefánsson (aftastur), Guttormur Óskarsson og Ole Bang (fremstur). Nær Steingrímur Arason (aftastur), Haraldur Árnason og Björn Daníelsson.
Jarðarför Péturs Hannessonar í Sauðárkrókskirkjugarði (1960). Líkmenn t.v. Árni Blöndal (aftastur). Árni Þorbjörnsson og óþekktur. Th. Óþekktur (aftastur), Kári Jónsson og Jón Jónsson, Hofi.
Jarðaför Péturs Hannessonar (ljósmyndara) frá Sauðárkrókskirkju, en hann lést árið 1960. Líkmenn, t.h að framan er Kristján Skarphéðinsson en Adolf Björnsson aftar og t.v að framan er Gunnar Þórðarson en aftari óþekktur. Vörubíllinn (líkbíllinn) var í eigu Sigurðar Björnssonar Suðurgötu 4. Rotaryfélagar bera kistu hans og standa heiðursvörð.
Jarðsett í Sauðárkrókskirkjugarði. T.v. presturinn Sr. Helgi Konráðsson. Friðrik Júlíusson hávaxinn á miðri mynd (með slaufu). Niðri í gröfinni gæti verið Valdimar Pétursson.
Jarðsetning Þorvaldar Guðmundssonar kennara í Sauðárkrókskirkjugarði í október 1961. Prestur er sr. Þórir Stephensen. Í fremstu röð má þekkja f.v. Hrein Þorvaldsson, óþekktur, Svavar Þorvaldsson (Dadda), Þorvald Þorvaldsson (Búbba), óþekkt og Huldu Jónsdóttur. Lengst t.h. er svo Þorvaldur Erlendsson.