Óþekkt kona fyrir framan hús. Myndin er tekin í Vesturheimi. Aftan á myndina er ritað: "Þetta eru tröppurnar á húsinu sem ég bý í. Stóri glugginn var á setustofunni minni. Eins og ég sagði í bréfinu, þá hefi ég flutt upp á sjötta gólf., svo þetta er ekki glugginn minn lengur."
Þóra Benediksdóttir fyrir miðju. Hin börnin eru óþekkt. Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður sínum Benedikt Jónssyni. Móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir urðu eftir á Íslandi. Þóra var fædd 1884 á Syðri-Brekkum, d. 1953 í Vesturheimi.
Aftan á mynd er skrifað: "Halldór, Björn, Gunnar. Probably taken in Winnigpeg in 1890s".
Tillaga: Þetta eru synir Jóns Benediktssonar (sonur Benedikts Vigfússonar prófast á Hólum í Hjaltadal) sem flutti til Ameríku ásamt sonum sínum. Sjá Skagfirzkar æviskrár bók 1850-1890 - I, bls 130
Benedikt Jónsson- Benediktssonar- Hólum í Hjaltadal (situr) og sonur hans Björn Benediktsson (stendur). Benedikt Jónsson var afi Guðlaugar Arngrímsdóttur Litlu-Gröf.