F.v. Oddrún Guðmundsdóttir - Ástvaldur Guðmundsson - Guðjón Ingimundason og óþekktur. Verið að bera saman tíma á sundmeistaramóti Norðurlands sem haldið var á Sauðárkróki 1961. Guðjón Ingimundarson fyrir miðri mynd.
Kennarar ásamt húsverði við barna- og miðskóla Sauðárkróks. Efri röð f.v. Guðjón Ingimundarson - Páll Þorgrímsson (húsvörður) -Gísli Felixson og Magnús Bjarnason. Neðri röð f.v. Friðrik Margeirsson - sr. Helgi Konráðsson - Björn Daníelsson og Árni Þorbjörnsson.
Guðjón Ingimundarson (1915-2004) afhendir Birgi Guðjónssyni (1948-) viðurkenningu fyrir 25 skagfirsk sundmet á kaffikvöld UMSS í Bifröst. Við borðið sitja Jóhanna og Valgard Blöndal.
Hópur fólks í rjóðri. Meðal annarra eru á myndinni: Guðjón Ingimundar (fremst) - Ragnheiður Brynjólfsdóttir - Hallfríður Guðmundsdóttir - Gígja Snæbjörnsdóttir (Guðrún Svanfríður Snæbjörnsdóttir) - Jóhann Brynjólfsdóttir og Helga Hannesdóttir. Sjá mynd GI 1940.
Sama mynd og hcab 2245. Efri röð frá vinstri: Árni M. Jónsson (1922-2009) - Jóhannes Hansen (1925-) - Sveinn Guðmundsson (1922-2013) - Páll Óskarsson (1929-1999) og Sveinn Ellertsson (1912-1983). Neðri röð frá vinstri: Sölvi Sölvason (1914-1993) - Jón Egilsson - Guðjón Ingimundarson (1915-2004) - Kristján Sölvason (1911-1994) og loks Guðvarður Skagfjörð Sigurðsson (1917-1994).
Nemendur Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni 1937: Frá vinstri: Jón Hjartar - Guðjón Ingimundarson, Páll Sigurðsson frá Lundi í Stíflu og Sigrún Jónsdóttir.
Nemendur Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni 1937: Frá vinstri: Jón Hjartar - Guðjón Ingimundarson, Páll Sigurðsson frá Lundi í Stíflu og Sigrún Jónsdóttir.
Frá vinstri: Sigurður Ólafsson Kárastöðum- Þórarinn Sigurjónsson frá Garði- Árni Hafstað Vík og Jón Sigurðsson Reynistað. Guðjón Ingimundarson snýr baki í ljósmyndarann. Myndin er tekin þegar 4 fyrstu ungmennafélagar í Skagafirði voru heiðraðir. Safn Kr. C. Magnússonar.
Í handavinnustofu Barnaskólans v/ Freyjugötu. Fullorðnir frá vinstri: Guðjón Ingimundarson- Jón. Þ. Björnsson og Páll Þorgrímsson. Drengir frá vinstri: Jóhannes Konráðsson- Bragi Pálsson- Reynir Guðmundsson- Haukur Jósefsson- Sveinn Friðvinsson- Jón Helgason- Gunnar Sigurðsson- Sigfús Árnason- Æ? Ingólfsson- Sigurður Þórólfsson og Haraldur Sveinsson. Gefandi í júlí 1980: Kristmundur Bjarnason- Sjávarborg.
Útför séra Helga Konráðssonar 1959. Líkmenn. Fremstur t.v. Guðjón Ingimundarson, næsti sést ekki, þá Guðmundur Sveinsson og aftastur Torfi Bjarnason. T.h. Guðjón Sigurðsson fremstur, þá (Haraldur Júlíusson). Á eftir kistunni kemur Ragnhildur Helgadóttir (dóttir s.r. Helga). Sama mynd og Atb 151.
Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Steinunn Ingimundardóttir veitir Stefáni Gunnarssyni verðlaun. T.h. við Stefán er á verðlaunapalli Sveinn Ingason. T.v. eru Hörður Pálsson (sér á bak). Kári Steinsson (með sólgleraugu) og Steingrímur Felixson (situr). T.h. er Guðjón Ingimundarson.
Málefnasamningur milli bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins, Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins á Sauðárkróki. Undirritaður af Huldu Sigurbjörnsdóttur, Erlendi Hansen, Birgi Dýrfjörð, Guðjóni Ingimundarsyni og Stefáni Guðmundssyni.
Útför Þorvaldar Guðmundssonar kennara í október 1961. Líkmenn eru fjær Guðjón Ingimundarson, Jón Þ. Björnsson og Friðrik Margeirsson og nær Marteinn Steinsson, Björn Daníelsson og Árni Þorbjörnsson.
Jarðaför Þorvaldar Guðmundssonar kennara á Sauðárkróki í október 1961. Prestur er sr. Þórir Stephensen. Unglingarnir á undan líkfylgdinni eru. Stúlkurnar fjær Sigríður Guttormsdóttir (fánaberi) Brynja Harðardóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir (á bak við fánann) og Heiðrún Friðriksdóttir. Drengirnir nær Ólafur Guðmundsson (fánaberi), Árni Ragnarsson, Valgarð Valgarðsson og Gylfi Ingason. Líkmenn eru, fjær Guðjón Ingimundarson, Gísli Felixson og Friðrik Margeirsson og nær Marteinn Steinsson, Björn Daníelsson og Árni Þorbjörnsson. Líkfylgdin á leið til kirkju að lokinni húskveðju að Aðalgötu 9, heimili Þorvaldar.
Rótaryklúbburinn á Sauðárkróki. Frá vinstri: Guðbrandur Frímannsson, Ragnar Pálsson, Páll Þorgrímsson, Björgvin Bjarnasyni (bak við Pál) svo er Rögnvaldur Finnbogason, Guðjón Ingimundar, Adolf Björnsson, Guðjón Sig, Jón Nikodemusson, Bjarni Sigfússon, óþekktur, Jón Sigfússon, Kristján Sölvason (með húfu), Valgarð Blöndal (með pípuhatt) svo Haraldur Júlíusson og á endanum Árni Gíslason.
Tillaga vegna flugvallar á Sauðárkróki, flutt á bæjarstjórnarfundi 1966, undirrituð af Guðjóni Ingimundarsyni, Stefáni Guðmundssyni og Marteini Friðrikssyni.