Bréfið vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar greiðslu láns vegna dánarbús Snæbjörns Sigurgeirssonar bakara á Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.
Hópmynd af leikhópi. Aftan á myndinni stendur "Leikrit: Frænka Charles". Aftari röð: Sigríður Sigtryggsdóttir, Magnús halldórsson, Snæbjörn Sigurgeirsson, Pétur Hannesson, Páll Jónsson. Fremri röð: Jóhanna Linnet, Sigurbjörg Jónsdóttir, Lárus Blöndal, Sigríður Blöndal (Þorgrímsdóttir), Guðmundur Björnsson. Mynd þessi birtist í Sögu Sauðárkróks blaðsíðu 377.