Umslag (stílað á Sigurð, Hjaltastöðum) með korti frá umboðsmanni Flugfélags Íslands á Sauðárkróki, Valgarð Blöndal bóksala. Kynning á Douglas Dakota flugvélinni. Dagsett 28.09.1950.
Kjörseðlar. Miðstjórnarkosning Framsóknarflokksins í Reykjavík og grennd og ungra Framsóknarmanna við miðstjórnarkjör í Reykjavík og grennd 1956. Sama úr landsfjórðungum/kjördæminu utan Reykjavíkur.
Við myndina stendur: "Þóranna, Pálmi, Pétur, Jón, Bryndís, Jóhann". Þóranna, Jón, Bryndís og Jóhann voru börn séra Pálma Þóroddssonar og Önnu Hólmfríðar Jónsdóttur. Pétur Pétursson var eiginmaður Þórönnu og sonur þeirra hét Pálmi Pétursson en þeir eru fremst á myndinni.
Tímóteus Torfason- (1851-1902) verkamaður á Sauðárkróki- Helga Jónsdóttir (1863-1924) - kona hans- og börn þeirra- Eiðvör Tímóteusdóttir (1889-1921)- síðar húsfreyja á Brimnesi í Svarfaðardal og Torfi Tímóteusson (1894-1958) síðar skipstjóri og hafnsögumaður á Siglufirði.
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geimundarstöðum- og dóttir hennar- Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar- Litlu-Gröf Skag.
Albert Kristjánsson (1865-1955)- Páfastöðum í Skagafirði- kona hans- Guðrún Ólafsdóttir (1856-1931)- dætur þeirra- Lovísa Albertsdóttir (1895-1955) (t.v.) síðar húsfreyja á Páfastöðum og Charlotta Soffía Albertsdóttir (1893-1949)- síðar húsfreyja í Reykjavík .
Guðbjörg Hallsdóttir (1845-1918), Ytri-Brekkum í Akrahrepp Skag. kona Guðmundar Andréssonar og dóttir þeirra Guðbjörg Guðmundsdóttir (1883-1960), húsfreyja á Jaðri í Glerárþorpi Eyj.
Ingibjörg Björnsdóttir Innstalandi, kona Guðmundar Sigurðssonar (situr t.h.), dóttir hennar Þóra Ingigerður er lengst til vinstri, í miðjuni er Sigrún Fannland sem ólst upp hjá þeim hjónum en efst t.h. er dóttir þeirra María Guðmundsdóttir
Börn Sveins Lárussonar frá Skarði- Skag. talið frá vinstri. Lárus Sveinsson (1912-1993) - María Ingibjörg Sveinsdóttir (1910-2006) verkakona Siglufirði og Sveinn Sveinsson (1914-1995).
Björn Pétursson (1834-1922) Hofsstöðum í Skagafirði og síðari kona hans Una Jóhannesdóttir (1853-1928). Kristín Björnsdóttir- síðar húsfreyja á Sauðárkróki- kona Kristins Briem kaupmanns- (1887-1970) situr á kné móður sinnar en Jóhannes Björnsson (1887-1967) síðar bóndi á Hofsstöðum við hlið föður síns.
Björn Pétursson (1834-1922) Hofsstöðum í Skagafirði og síðari kona hans Una Jóhannesdóttir (1853-1928). Kristín Björnsdóttir (1889-1961) síðar húsfreyja á Sauðárkróki kona Kristins Briem (1887-1970) kaupmanns, situr á kné móður sinnar en Jóhannes Björnsson (1887-1967) síðar bóndi á Hofsstöðum við hlið föður síns.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir (1840-1909) Bæ á Höfðaströnd Skag- kona Konráðs Jónssonar og sonarsonur hennar Konráð Jónsson (1901-1955)- síðar kaupmaður í Kaupmannahöfn og Reykjavík.
Jón Jónsson "Hjalti" (1837-1915) bóndi á Hjaltastöðum Skag- kona hans Helga Arnbjörnsdóttir (1856-1923) og sonur þeirra Páll Jónsson. Þau bjuggu um tíma í Vesturheimi- en fluttust síðast til Sauðárkróks.