Útför séra Helga Konráðssonar 1959. Líkmenn. Fremstur t.v. Guðjón Ingimundarson, næsti sést ekki, þá Guðmundur Sveinsson og aftastur Torfi Bjarnason. T.h. Guðjón Sigurðsson fremstur, þá (Haraldur Júlíusson). Á eftir kistunni kemur Ragnhildur Helgadóttir (dóttir s.r. Helga). Sama mynd og Atb 151.
Fjölskyldumynd frá jarðaför Hildar Margrétar Pétursdóttur. Ludvig C. Magnússon, Lára I. Magnúsdóttir, Pála Sveinsdóttir (Magg) og Kristján C Magnússon (1957).
Jarðarför Péturs Hannessonar í Sauðárkrókskirkjugarði (1960). Prestur sr. Þóri Stephensen. Fremst (lengst t.h.) Sigríður Sigtryggsdóttir, ekkja Péturs og dætur þeirra Hanna (nær) og Sigrún (Siddý).
Sjá mynd 2752. Jarðsett í Sauðárkrókskirkjugarði. Prestur er séra Þórir Stephensen. Hái maðurinn sem ber framan við sr. Þóri er Örn Sigurðsson uppeldissonur Stefaníu og Sölva.
Sjá mynd 2752. Líkfylgdin við Sauðárkrókskirkju. Líkmenn eru synir Stefaníu og Sölva Jónssonar. Fremstir eru Kristján fjær og Sölvi nær þá Sveinn fjær og Maríus nær og aftast Jónas fjær og Albert nær.
Viðtal tekið á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki árið 1967. Sigurður segir frá ferðalögum yfir Helju og Hjaltadalsheiði og segir söguna af því þegar hann fór yfir í Svarfaðardal veturinn 1917 til að vera við jarðarför föður síns.
Jarðaför Salome Pálmadóttur. Líkmenn, t.v .fremstur Þorvaldur Þorvaldsson, þá Jón Þ. Björnsson og aftastur er Sigurður Þórðarson, Egg (sést ekki). T.h. fremstur Svavar Þorvaldsson, maðurinn í miðið óþekktur og aftastur Daníel Glad. Á eftir kistunni þorvaldur Guðmundsson og dætur hans tvær, Þær Guðbjörg og Ingibjörg (Búa t.h.). Þá Erla Gígja Þorvaldsdóttir t.v. og móðir hennar Hulda. Aftan við Erlu Gígju eru Kolbrún Svavarsdóttir og Hjalti Jósefsson. Svavar Guðmundsson ber t.h. við Erlu Gígju.
Jarðaför Salome Pálmadóttur. Líkmenn: Fjær fremstur Þorvaldur Þorvaldsson þá Jón Þ. Björnsson og aftastur er Sigurður Þórðarson Egg. Nær fremstur Svavar Þorvaldsson og aftastur Daníel Glad. (1957).
Útför Þorvaldar Guðmundssonar kennara í október 1961. Líkmenn eru fjær Guðjón Ingimundarson, Jón Þ. Björnsson og Friðrik Margeirsson og nær Marteinn Steinsson, Björn Daníelsson og Árni Þorbjörnsson.
Útför Þorvaldar Guðmundssonar kennara frá Sauðárkrókskirkju í október 1961. Líkmenn t.v. Sigurður P. Jónsson, (Guðmundur Einarsson) og Rögnvaldur Finnbogason og t.h.Guðjón Sigurðsson, Kári Jónsson og Erlendur Hansen. Stúlkurnar t.v. eru f.v. Heiðrún Friðriksdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Brynja Harðardóttir og Sigríður Guttormsdóttir og drengirnir t.h. eru neðan frá Gylfi Ingason, Valgarð Valgarðsson og Árni Ragnarsson.
1 ljósmynd í stærðinni 15,4 x 11,2 cm. Á myndinni má sjá kistu með beinum Miklabæjar-Sólveigar, áður en þau voru greftruð í Glaumbæjarkirkjugarði. Aftan á myndina er ritað: "Kista með beinum Miklabæjar-Sólveigar í Miklabæjarkirkju fyrripart júlí mánaðar 1937. Þau voru jarðsett af sr. Lárusi Arnórssyni í glaumbæ sunnudaginn 11. júlí 1937." Ástand myndarinnar er gott.
Útför - Hugsanlega Jón Þorsteinsson (dó 01. 05. 1956). Líkkistan tekin út um glugga á Suðurgötu 10, væntanlega að lokinni húskveðju. F.v. Pétur Jónasson og Steindór Benediktsson, óþekktur, Guðmundur Sigurðsson (heldur undir kistuna). Lengst t.h. er svo Sigurður Helgason. Aðrir óþekktir.