Bréfið er frá Pétri Björnssyni, Siglufirði. Við blaðið var heftað reikningsnóta og afklippingur. Á nótunni er nafn Sveins Ásmundssonar og kvittun hans, en hann var smiður á Siglufirði. Bréfið er vélritað á jólakort.
Bréfin varða friðun rjúpna. Eitt bréf frá Menntamálaráðuneytinu til Magnúsar hreppstjóra, undirrituð af Birgi Thorlacius og Sigurði J. Briem. Svarbréfin eru frá Magnúsi sjálfum og annað með stimpli hreppstjóra Rípurhrepps.
Bréfið er skrifað í Rona House, Oakwood Grove, Leeds, 8. Yorkshire, England. Á umslaginu er póststimpill, stimplað í júní 1954. Bréfið er til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar, en stílað á Magnús.
Líklega var umslag kortsins stimplað á Siglufirði. Dagsetning: 22.12.1953. Kortið er til þeirra beggja, Magnúsar og Sigurbjargar. Umslag stílað á Magnús.
Bréf frá Pétri Björnssyni til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar. Hann vísar einnig í bréf dóttur sinnar, sem hefur verið sent samhliða. Meðfylgjandi umslag er stílað á Magnús.
Landbrot við verslunarhúsin, sem voru staðsett nærri Villa Nova. Landbrot var verulegt vandamál á Sauðárkróki og gerðar margar tilraunir tila ð hefta það. Með tilkomu hafnar út á Eyrinni minnkaði þetta vandamál, en síðar var lagður grjótgarður fyrir framan húsin til að koma í veg fyrir að þau sópuðust á haf út. Brún við gömlu bryggju.
Á síld um borð í Skagfirðingi SK 1. Frank Michesl í félagi við fleiri menn stóður fyrir kaupum á skipinu frá Belgíu. Útgerð skipsins reyndist afar erfið, en mikil atvinnubót varð af því. Hvíldu ábyrgðirnar að mestu á Michelsen og allt valt á að síldin veiddist. Skagfirðingur var síðast gerður út frá Sauðárkróki árið 1940. Vinstramegin bakatil Sigvaldi Þorsteinn Sveinn Nikódemusson (1908-1990) Tilgáta um Sighvat Pétursson Sighvats (1922-1991) Lengst til vinstri Óskar Magnússon
Jórunn að gefa hænunum. Magnús Jónsson og Kristinn Michelsen í dyragættinni. Hænsnarækt var mikilvæg búbót fyrir marga Króksara. Árið 1940 voru ríflega 450 hænur á Sauðárkróki en íbúar ríflega 900.
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).
Mannamyndir, stúlka með sítt liðað hár í hvítri skyrtu. Snýr að hálfu baki í ljósmyndarann. Viðbót 17.01.2022: Þetta er Jósefína Erlendsdóttir frá Stóru Giljá, kona Friðriks Hansens.- Heimild: Gunnhildur Kristín Björnsdóttir.
Bréf/nóta um það sem Ingvar H. Sigurðsson frá Glaumbæ staðfestir að hafa fengið greitt það vetrarkaup sem hann hafði fengið hjá Magnúsi Kr. Gíslasyni bónda á Vöglum 1958-1959. Ath. sundurliðanir á baksíðu?
Heyskapur á Sauðá. Jóhannes Hansen uppá heyi. Frá vinstri Magnús Ásgrímsson, Friðrik Hansen, Sigríður Eiríksdóttir, Halldóra Jóhannsdóttir með Björg Jórunni í fangi, lengst til hægri Elísabet Evertsdóttir, kona Magnúsar.