Frá ferð blaðamanna upp á Skálfelljökul og að Jökulsárlóni í boði Jöklaferða og innanlandsflugi Flugleiða í júlí 1990. Konan lenst t.v. gæti verið Soffía Káradóttir.
Mjólkurframleiðendur sem löggðu inn hjá mjókurstöðinni á Blönduósi 1992 heiðraðir fyrir úrvalsmjólk, en til þess að fá þessa viðurkenningu þarf öll mjólk ársins að vera með með mjög lága gerla og frumutölu. Framleiðendurnir 7 sem fengu þessa viðurkenningu eru, frá Neðri-Harastöðum, Hlíð í Skagahreppi, Auðólfsstöðum, Austurhlíð, Blöndudalshólum, Steiná III og Hvammi í Ásahreppi.
Í tilefni sýningarinnar "Konur á Króknum" sem sett var upp í Barnaskólanum við Freyjugötu sumarið 1997. F.v. Jón Ormar Ormsson, Páll Brynjarsson og Jón Þórisson, en hann sá um uppsetningu sýningarinnar ásamt Kvennfélagi Sauðárkróks. Myndin tekin á Freyjugötunni.
Frá veiðidegi fjölskyldunnar á Sauðárkróki, ár ? Þeir þrír til vinstri eru þeir sem veiddu stærstu fiskana. F.v. Gunnar Andri Gunnarsson, Ingimar Hannesson og Gísli Kristjánsson.
Frá 100 ára afmæli Kvenfélags Sauðárkróks sem haldið var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í ágúst 1995. M.a. voru sýndir þjóðdansar, en þjóðdansahópinn skipuðu. María Gréta Ólafsdóttir (1956-), Jóna Björg Heiðdal (1948-), Branddís Eyrún Benediksdóttir (1946-), Margrét Jenný Gunnarsdóttir (1947-), Guðbjörg Sveinsdóttir Bjarman (1936-), Helga Sigurbjörnsdóttir ( 1943-), Lára Angantýsdóttir (1938-), Engilráð Margrét Sigurðardóttir (1941-), Lovísa Símonardóttir (1948-), Sólborg Björnsdóttir (1932-) Rannveig Jóhannsdóttir og Kristín Jóhannsdóttir.
Þorrablót í Félagsheimilinu á Blönduósi. F.v. Einar Svavarsson og Sigríður Hermannsdóttir Hjallalandi, Sigríður Höskuldsdóttir Kagaðarhóli, Lúther Olgeirsson Forsæludal, Valgarður Hilmarsson Framstagili, og Stefán Á. Jónsson Kagaðarhóli.
vinnuvaka Kvenfélagasambands Skagafjarðar haldin að Löngumýri í mars 1996. Við enda borðsins, t.v. Pálína Sumarrós Skarphéðinsdóttir (1944-) og t.h. við borðshornið Ingibjörg Jóhannesdóttir, Miðgrund þá Ingibjörg Jóhannesdóttir, Ketu, Gígja Hrund Símonardóttir Ketu og óþekkt.
Tilg. Fundur í Ræðuklúbbi Sauðárkróks á Kaffi Krók (1996) um Jónas Kristjánsson lækni. F.v. Sigríður Sigurðardóttir, Friðrik Jón Jónsson (1925-), Gunnar Hörður Ingimarsson (1943- við vegginn), Bragi Skúlason (1938-), Jón Ormar Ormsson (1938-), Anna Pála Guðmundsdóttir (1923-), Páll Ragnarsson (1946-) og Unnar Rafn Ingvarsson (1968-). Samskonar mynd og 1105.
Fundur um safnamál á Kaffi Krók, sem Ræðuklúbbur Sauðárkróks stóð fyrir í nóvember 1996. Frá vinstri Árni Ragnarsson (1949-), Knútur Aadnegard (1951-), og Þór Magnússon, þjóðminjavörður (í ræðustól).
Lomberklúbburinn Ponti á Hvammstanga í desember 1996. Frá vinstri Þorbjörn Ágústsson, Karl Sigurgeirsson, Eggert Leví, Páll Sigurðsson og Sigfús Ívarsson.
Securitas-hópurinn frá Sauðárkróki varð í þriðja sæti í Freestyle danskeppni í Tónabæ í febrúar 1994. Hópinn skipuðu. Efstar: Gerður Alda Gylfadóttir (1978-) t.v. og Þórdís Ósk Rúnarsdóttir (1978-), Mið röð til vinstri: Áslaug Birna Jónsdóttir (1978-) og Steina Margrét Finnsdóttir (1978-), Fremst: Ragndís Hilmarsdóttir (1978-). Hópurinn dansaði undir stjórn Guðrúnar Jónu Valgeirsdóttur.
Til vinstri Jónas Kristjánsson, ritstjóri, Reykjavík tekur við ljósrituðum fundargjörðum Framfaraklúbbs Sauðárkróks úr hendi Árna Ragnarssonar formanni afmælisnefndar Sauðárkróks á minningarkvöldi um Jónas Kristjánsson lækni sem Ræðuklúbbur Sauðárkróks stóð fyrir á Kaffi Krók í september 1996. Sitjandi, Anna Kristín Gunnarsdóttir (1952-).
Unnið að því að setja saman rör sem undirgöng undir Sæmundarhlíð frá Bóknámshúsi að heimavist Fjölbrautaskólans árið 1996, en björgunarsveitin Skagfirðingasveit sá um samsetningu röranna.
Herdís Á. Sæmundardóttir (1954-) formaður skólanefndar tekur fyrstu skólfustungu að byggingu B-álmu og Kubbsins við Árskóla í ágúst 1999. Aðstoðarmaður á gröfu óþekktur.
Fyrsta skóflustunga tekin að byggingu B-álmu Árskóla í ágúst 1999. F.v. Herdís Á Sæmundardóttir formaður skólanefndar, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Helgi Sigurðsson, Þórarinn Sólmundarson (á bak við), Stefán Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Steinunn Hjartardóttir, Óskar G. Björnsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir (framan við), Selma Barðdal og Hallfríður Sverrisdóttir (sést að hluta). Trésmiðjan Borg sér um verkið.
Leikfélag Skagastrandar setti upp í félagsheimilinu Fellsborg, leikritið Stálblóm í Fellsborg eftir Róbert Hartling, síðla vetrar árið 1993. Leikstjóri jónas Jónasson.
Dægurlagakeppni Kvennfélags Sauðárkróks vorið 1994. Frá vinstri Kristján Gíslason (1969-), Vigdís Gígja Ingimundardóttir (1977-), Róbert Óttarsson (1972-) og Valdís Guðbrandsdóttir (1977-). Sigurvegari keppninnar var Björn Hannesson tónlistarmaður á Hvammstanga.
Þorrablót á Ketilási í Fljótum í janúar 1997. "Hrútasýning". F.v. Rikharður Jónsson Brúnastöðum, Inga Jóna Stefánsdóttir, Þórður Axelsson, Bergþóra Pétursdóttir Stórholti og óþekktur hrútur, gæti verið Númi Jónsson.
Tilg. Frá bæjarskrifstofunni á Króknum. Næsr t.v. Elsa Jónsdóttir og Matthías Viktorsson bak við hana. Sennilega Inga Adreassen lengst t.h. og Engilráð Sigurðardóttir önnur f.h. Maðurinn í horninu óþekktur.
Ítölunefnd fyrir Eyvindasta- og Auðkúluheiði kynnir niðurstöður nefndarinnar á fundi í Varmahlíð vorið 1985, en talið er að heiðarnar þoli ekki það beitarálag sem á þeim hefur verið. Á myndinni eru f.v. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Andrés Arnalds frá Landgræðslunni, Jóhann Guðmundsson, Stapa, Sigurpáll Árnason, Lundi og Ólafur Dýdmundsson, landnýtingarráðunautur í ræðustóli.