Karlakór Sauðárkróks að syngja fyrir Sauðkrækinga á 17. júní 1964 F. v má þekkja. Hreinn Jónsson - Guðmann Tóbíasson - Bragi Haraldsson - Hilmar Jónsson - Sveinn Sölvason - Björgvin Jónsson - Páll Sigurðsson (á bak við Björgvin) Sverrir Svavarsson - Steindór Steindórsson - Kristján Sölvason - Sverrir Björnsson - Svavar Helgason og Ásgrímur Helgason. Stjórnandi er Ögmundur Svavarsson. Jón Friðbjörnsson t.v. með hatt og gleraugu.
F. h. Svava Svavarsdóttir - Hólmfríður Friðriksdóttir - Oddrún Guðmundsdóttir - Steinunn Ingimundardóttir - Hallfríður Guðmundsdóttir - Hrafnhildur Stefánsdóttir - óþekkt - óþekkt og Ingibjörg Lúðvíksdóttir. Allar úr UMF Tindastóli. Aðrar óþekktar. Fánaberi Stefán Guðmundsson. Handknattleiksmeistaramót Íslands á Sauðárkróki.
Skátafélagið Andvarar: Fundagerðabók stjórnar. Fundagerðirnar eru skrifaðar á tímabilinu 1942-1949. Meðfylgjandi er fundargerð á lausum miða, 25.05.1939.
Í safninu eru ljósrituð, forprentuð, vélrituð og handskrifuð skjöl. Skjölin eru í góðu ásigkomulagi, sum þeirra eru ódagsett en virðast tengjast sama tímabili og þeirra sem eru dagsett. Í safninu eru söngtextar, starfsáætlanir, upplýsingar fyrir skátalandsmót, afmælisblað og fleira.
Forprentaðar skýrslur með handskrifuðum upplýsingum um framkvæmdir á Sauðárkróki á tímabilinu 1926-1949 - með nokkrum undantekningum þar sem vantar nokkur ártöl inn í. Safnið er í misjafnlega góðu ástandi, skýrsla fyrir árið 1931 er t.d. mjög illa rifin. Safnið og raðað upp eftir ártali og heftin hreinsuð úr.
júní 1958 á íþróttavellinum á Sauðárkróki. Til hægri er Sigmundur Pálsson (með boltann). Þekkja má til hægri. F.h. Sólborg Valdimarsdóttir, María Pétursdóttir, Stefanía Anna Frímannsdóttir. Lengst t.v. Íris Sigurjónsdóttir og Jónína Antonsdóttir (Ína).
Horft frá Suðurgötu til norðausturs. Sæmunargatan í bakgrunni, barnaskólinn við Freyjugötu fyrir miðri mynd, kjörbúð KS (nú ráðhúsið) og hús við Suðurgötuna fremst á myndinni.
Fyrsta stofnfundargerðabók sem er harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í nýrri kápu en blaðsíður eru gulnaðar og nokkuð rifnar svo bókin er í lélegu ástandi. Aftast í bók er skráning frá 1915 Leikrit og munir sem Hið skagfirska félag á og svo upptalning á því. Hefur verið ritað síðar.
Harðspjalda handskrifuð fundargerðabók í lélegu ástandi. Kápa er laus frá en er með límborða sem heldur bók saman. Bókin er bundin saman með bandi og los á blaðsíðum og nokkrar alveg lausar.
Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í nokkuð góðu ástandi. Bókin er bundin með bandi og fremstu tvær blaðsíður hafa verið klipptar en blaðsíður nokkuð krassaðar. Aftari bókakápa með broti í horni.
Harðspjalda handskrifuð fundageraðbók í góðu astandi en lítillegt los á fremstu blaðsíðum. Bókin segir frá síðustu árum félagsins sem vitað er af í þessum gögnum.
Innbundin og handskrifuð og vel læsileg bók, fundagerðirnar eru frá stofnun Ungmannafélags Tindastóls. Blaðsíður eru heillegar en bókin hefur varðveist illa, bókin er án kjalar og bindingin er einnig illa farin. Nokkuð af blöðunum inni í bókinni eru laus úr bindingunni.
Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin hefur líklega lent í raka eða bleytu sem sést sést á öftustu blaðsíðunum. Í bókinni er athugasemd sem er svohljóðandi; Bók þessi týndist árið 1941. Var þá ný gjörðabók tekin í notkun og gildir hún frá 5. janúar 1942 til ársloka 1948.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Bókin heldur skrá utan um orð sem félagsmenn hafa látið falla á fundum og merking þeirra. Bókin er slæmilega varðveitt en kápa hennar er orðin snjáð, kjölurinn er límdur og bindingin er orðin léleg.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók og vel varðveitt. Bókin er í A4 stærð og í henni eru undirritanir einstaklinga, líklega félagsmanna U.M.F.T. ásamt dagsetningum og hefur verið nýtt sem gestabók / félagatal.
Frá verðlaunaafhendingu á Grettisbikarnum í Sundlaug Sauðárkróks sumarið 1999. Frá vinstri, Valgeir Steinn Kárason (1951-) sem vann bikarinn það ár og faðir hans Kári Steinsson (1921-2007) sem vann bikarinn þegar fyrst var keppt um hann árið 1940 í Varmahlíð.
Handskrifuð pappírsgögn með fundargerð frá aðalfundi knattspyrnudeilda Tindastóls, 27.12.1990. Ásamt fundagerðinni er dagskrá fundarins rituð á eitt blaðið og tvö önnur fylgigögn sem tengjast umræðunni og ákveðið var að setja þau skjöl með fundagerðinni. Eitt forprentað fylgiskjal er meðal gagnanna á því er skrifuð nöfn nokkurra leikmanna Tindastóls í karla- og kennaflokki sem hafa staðið sig hvað best það tímabilið en ekki kemur fram hvaða tímabil er um rætt en giskað er á að það sé um 1990. Eitt blað, vélritað með titlinum Uppskeruhátið Meistaraflokks Tindastóls í knattspyrnu 1990, verðlaunaafhending. Á blaðinu eru nöfn einstaklinga sem skarað hafa úr á árinu 1990 í fótbolta, bæði í kvenna- og karlaflokki.
Innbundin og handskrifuð bók, vel læsileg en kjölur bókarinnar hefur skemmst en að öðru leyti hefur hún varðveist ágætlega. Í bókinni eru fundargerðir stjórnar körfuknattleiksdeildar auk pappírsgagna sem tengjast fundargerðum deildarinnar. Meðal annars er fundargerð dags. 22.11.1993 vegna foreldrafundar. Hins vegar er tölvuprentuð fundargerð frá Formannafundi KKÍ, dags. 8. jan.1994
Fundgerðabók aðalfunda Verkamannafélagsins Fram 1933-1935. Innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum. Nokkrar blaðsíður eru auðar og virðist sem að það hafi farist hjá að skrá nokkrar fundagerðir í bókina. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt.
Fundagerðabók stjórnar Verkamannafélagsins Fram 1935-1942. Innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum í A5 stærð. Bókin er ágætlega varðveitt og vel læsileg.
Fundgerðabók Verkamannafélagsins Fram 1942-1953 og inniheldur fundagerðir stjórnar. Innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt, bindingin er aðeins farin að losna frá. Límborði er á kili bókarinnar.
Fundgerðabók Verkamannafélagsins Fram 1951-1969 inniheldur fundagerðir félagsfunda. Bókin er grænyrjótt í A4 stærð og er innbundin handskrifuð og með línustrikuðum blaðsíðum. Bókin er ágælega varðveitt og vel læsileg.
Fundagerðabók Verkamannafélagsins Fram 1961-1967 sem inniheldur fundagerðir stjórnar og trúnaðarmannaráðs. Innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum og er græn á lit. Í bókinni eru fundagerðir þar sem V.M.F. Fram og Verkakvennafélagagið Aldan funda um fyrirhuguð verkföll hjá verkafólki á Sauðárkróki. Á aftasta saurblaði bókarinnar eru tvær vísur og undir þeim eru stafirnir E.H. Á þessum tima var Egill Helgason fundaritari og eru vísurnar líklega eftir hann.