Bréfið er handskrifað á 4 línustrikaðar pappírsarkir, alls 7 skrifaðar síður. Með liggur reikningur vegna sölu og flutnings á æðardún. Með liggur umslag.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar beiðni um að senda skrif Hannesar Hannessonar, föður Valbergs, í tímaritið Heima er bezt. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er ritað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar beiðni um að skipta á eintökum af Skagfirskum æviskrám. Viðtakandi er ekki tilgreindur en líklegt má telja að hann sé Eiríkur Kristinsson. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur staðfesting Sigríðar á að hún hafi sent afrit af bréfi dags. 16.12.1895 til Ola K. Olson. Einnig liggur með ljósrit af umræddu bréfi frá 1895. Ástand skjalsins.