Samningurinn er 3 pappírsarkir í A4 stærð. Hann kveður á um samstarf samningsaðila vegna kennslu í fornleifafræði og fornleifarannsóknar að Hólum í Hjaltadal. Ástand skjalsins er gott.
Kynningardagur í Hólaskóla vorið 1999. f.v. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.
Nýju fjárhúsin á Hólum í Hjaltadal vígð vorið 1992. Sigurjón Markússon Jónasson "Dúddi á Skörðugili" (1915-1993) t.v. og Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra t.h. Á milli þeirra er hugsanlega Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Ljósmynd í stærðinni 8,8x12,5 cm. Á myndinni sést Pálmi Jónsson á Akri, þáverandi landbúnaðarráðherra, taka fyrstu skóflustunguna að laxeldisstöð á Hólum í Hjaltadal á ýtu Garðars Guðjónssonar.
Útskrift frá Hólum vorið 1985. Jón Bjarnason (1943-) lengst til hægri. Hæstu einkunn hlaut Gunnar Sigurðsson frá Stóru-Ökrum og er hann í öftustu röð fyrir miðju og sagðist hann aðspurður ætla að verða bóndi og hefur það gengið eftir. Myndin tekin á tröppum Hóladómkirkju.
Hólum 28. maí 1976. Einar E. Gíslason, Þorgeir Jónsson, Gufunesi, Haraldur Þórarinsson, Laugalandi og Þorkell Bjarnason. Við forskoðun á hrossum á Hólum og í Skagafirði.
Hólahátíð 1987. Á myndinni má þekkta sr Hjálmar Jónsson (3 f.v.), sr Döllu Þórðardóttur (við bílinn, horfir í myndavélina) og sr Gísla Gunnarsson (aftastur, með gleraugu).
Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Hólabardagi 1209. Að tilstuðlan Haukdælingsins Þorvaldar Gissurarsonar í Hruna slóust sunnlenskir og borgfirskir bændur í lið með Arnóri Tumasyni að hefna Kolbeins Tumasonar og tóku upp erindi hans frá Víðinesi. Með þeim voru þeir bræður Sighvatur og Snorri Sturlusynir. Slí í brýnu á Hólum, en biskup var liðfár og gerði Arnór honum þá kosti að létta af þeim bannfæringunni og bauð á móti grip fyrir sakamenn þá sem biskup hélt hlífiskildi yfir. Neitaði biskup þar til Snorri bauð honum með sér í Reykholt og reið með hann brott af Hólastað, en sakamenn þeir sem Kolbeinn hafði sektað voru dregnir úr kirkju og höggnir." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 18).
Nemendur Hólaskóla í Hjaltadal vorið 1999. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.
Útskrift í Hólaskóla haustið 1999 en þá brautskráðust 27 búfræðingar. Skúli Skúlason nýráðinn skólameistari lengst t.v. og Jón Bjarnson fráfarandi skólastjóri lengst t.h.
Hóladómkirkja,. Næst eru Davíð Oddson ( 1948-) forsætisráðherra og kona hans Ástríður Thorarensen (1951-). Til hægri er Matthildur Jónsdóttir (1936-). Hugsanlega er þetta í ágúst 2001, en þá lagði Davíð hornstein að Auðunnarstofu að lokinni messu í Hóladómkirkju.
Kynningardagur á Hólaskóla vorið 1999. Nemendur hrossaræktarbrautar gáfu góðfúslegar upplýsingar um námið. Þekkja má Hjalti Páll Þórarinsson Vogum Kelduhverfi, annan f.v. í aftari röð og Rósu Maríu Stefánsdóttur frá Akureyri fjórðu f.v. í aftari röð.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, undirritað af Guðmundi Jónssyni fh framkvæmdanefndar um styttu af Guðmundi biskup góða á Hólum í Hjaltadal.
Landsmót á Hólum í Hjaltadal 1966 Stóðhestur m. afkvæmum Roði 453 frá Ytra-Skörðugili, rauður. (IS1951157550). Knapi á Skýfaxa: Símon Teitsson Afkvæmin: 1. Blesi 598 og Marinó Jakobsson 2. Bliki og Höskuldur Eyjólfsson.
Landsmót að Hólum í Hjaltadal 13-17. júlí 1966. Kolbrún 3059 frá Þingnesi, (IS1959235500). AE 8,15. Knapi og eigandi, Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Kröggólfsstöðum.
Landsmót að Hólum í Hjaltadal, 13-17. júlí 1966. Ljósbrá 3066 frá Hruna, Hrunamannahr. Árn. leirljós. (IS1959288396). AE 8,23. Knapi, Kristinn Jónsson, ráðunautur, frá Þverspyrnu.
Landsmót á Hólum í Hjaltadal, 13-17. júlí 1966. Drottning 3240 frá Gilsá, Eyjaf. jarpskjótt. (IS1958265830). AE 8,29. Björn Jónsson, Akureyri, heldur í hana.
Perla 3251 frá Svertingsstöðum, Eyjaf. jarpstjörnótt. (IS1961265970). AE skráð á slides 8,54. en skv. worldfeng. 8,53. Stóð efst, 1. verðlaun. Sýnd á L.H. að Hólum í Hjaltadal 13-17. júlí. Knapi, Þorsteinn Jónsson, Akureyri.
Landsmót á Hólum,13-17. júlí 1966. Dekkja 3257 frá Fornustekkum, Nesjum, Hornaf. brún. (IS1959277225). AE 7,83. Knapi og eigandi, Guðmundur Jónsson, Höfn.
Landsmót hestamanna á Hólum 1966. Afkvæmi Roða 453 frá Ytra-Skörðugili. Talið frá hægri: Björn Jóhannesson, Laugavöllum á Smáfrúar, Rauð, Höskuldur Eyjólfsson, Hofsstöðum á Blika frá Deildartungu og Jón Þorsteinsson, Giljahlíð á Vin.
Landsmót á Hólum í Hjaltadal 1966. Faxi 616 frá Reykjum, Reykjarströnd Skag. grár. (IS1961158322). AE 7,84. Steinbjörn Jónsson, Hafsteinsstöðum heldur í hestinn.
Landsmót á Hólum í Hjaltadal 1966. Baldur 620 frá Vatnsleysu, Skag. grár f. brúnn. (IS1962158515). AE 7,99. Sigríður Höskuldsdóttir, Kagaðarhóli heldur í hann.
Landsmót að Hólum í Hjaltadal, 13-17. 1966. Kengála 3018 frá Langholtskoti. brún. (IS1956288390). AE 8,28. Knapi og eigandi, Hermann Sigurðsson, Langholtskoti.
Landsmótið á Hólum í Hjaltadal, 13-17.júlí 1966. Fjöður 2981 frá Syðra-Langholti, brún. (IS1955288226). AE 8,21. Knapi, Sigurður Jónsson, Sóleyjarbakka.
Landsmót að Hólum í Hjaltadal, 13-17. júlí 1966. Buska 3088 frá Bólsstað, Rvík. sótrauð, nösótt. (IS1956225289). AE 8,26. Knapi, Sigurður Ólafsson, söngvari Lauganesi.
Landsmót á Hólum í Hjaltadal,13-17. júlí 1966. Svala 3142 frá Torfufelli, gráskjótt. (IS1955265845). AE 8,24. Knapi og eigandi, Sigurður Jósepsson, Torfufelli.
Dögg 3255 frá Kyljuholti, A-Skaft. rauð. (IS1952277425). AE 8,27. Sýnd á L.H. að Hólum í Hjaltadal, 13-17. júlí. Ásgrímur Halldórsson, Höfn, A-Skaft. heldur í hana.
Landsmót á Hólum í Hjaltadal 1966. Stjarni 610 frá Bjóluhjáleigu, Rang. Rauðstjörnóttur, glófextur. (IS1960186500). AE 8,08. Gunnar Tryggvason er knapinn.
Landsmót hestamanna á Hólum 1966. Skráð á slides mynd Gletta 2385 frá Lauganesi, með afkv.Eigandinn, Sigurður Ólafsson, söngvari, heldur í hana. Kona Sigurðar heldur í Gulu-Glettu og Erling heldur í Hroll.
Landsmót að Hólum í Hjaltadal 1966. Blesa 2712 frá Sauðárkrók, rauð hálfblesótt. (IS1948257001). með afkvæmum, byggingardómur 8,3. Knapar frá v. Stefán Helgason, Tungu, Sveinn Guðmundsson og Ólöf Jónsdóttir, Rvík. með Hnotu 3233.