Listinn er handskrifaður á tvær pappírsarkir í folio broti, alls átta síður. Hann nær yfir hluti sem keyptir hafa verið í safnið, óljóst er á hvaða tímabili. Listinn er sundurliðaður eftir bæjum. Ástand skjalsins er gott.
Afrit, vélritað á pappírsörk í folio stærð. Bréf til Vegamálastjóra. Varðar skaðabótakröfu vegna æðarvarps í landi Sjávarborgar og í landi Hellulands. Ástand skjalsins er gott.