Viðtal við Guðrún Eiríksdóttir, Villinganesi. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Rætt um æsku og uppvöxt Guðrúnar en hún ólst upp hjá foreldrum sínum í Villinganesi. Guðrún rifjar upp fyrstu bernskuminningarnar frá frostavetrinum mikla 1918 og upp úr því. Guðrún fer með tvær vísur eftir Pálma á Reykjavöllum. Einnig fer hún með afmælisvísu sem hún orti þegar Sigurður bróðir hennar á Borgarfelli varð sextugur og frumorta vísu sem tengist byggingu á réttarskúr. Að lokum spyr Sigurður um skoðanir hennar á lífinu eftir dauðann.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lánsábyrgð vegna Ræktunarsjóðsláns fyrir Eirík Guðnason í Villinganesi. Ástand skjalsins er gott.
Viðtal við Aðalstein Eiríksson, Villinganesi. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Rætt um æsku og uppvöxt Aðalsteins en hann ólst upp hjá foreldrum sínum í Villinganesi og hóf þar búskap 1947. Spurt um fyrstu minningar og eftirminnileg atvik. Aðalsteinn segir frá hestum sínum og rætt er um búskapinn og tækniframfarir í honum. Þá er rætt um árferði, tíðarfar og horfur í landbúnaði. Loks spyr Sigurður um trú hans á drauma, dulræn fyrirbæri og líf eftir dauðann.
Einar Björnsson- (1833-1887) Ytri- Svartárdal- Lýt.- kona hans- Stefanía Björnsdóttir (1870-1925)- dóttir þeirra- Petrína Einarsdóttir- síðar húsfreyja í Villinganesi- Skag.