Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm. Bókin inniheldur m.a. heiti á greinum eftir Hannes Hannesson sem Pétur hefur ritað hjá sér sem og uppskrift nokkurra greina. Einnig kjörskrá Holtshrepps 1966 og úrslit kosninga í hreppnum sama ár. Jafnframt úrslit Alþingiskosninga 1970. Þá er í bókinni skrá yfir sögur lesnar í útvarpinu 1947-1951. Einnig brot úr fundargerðum ungmennafélagsfunda. Loks sögn frá Hornnesi. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja fimm minnismiðar, m.a. um ættfræði.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.