Viðar, sveitablað Viðvíkurhrepps 1916. Meðal efnis er grein um hreppsveg, skemmtanir, hjónabandsástir, karlmennskusaga, kveðskapur og ýmislegt fleira. Í ritnefnd sátu: Hartmann Ásgrímsson, Bessi Gíslason, Guðbrandur Björnsson.
Viðar blað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi 1916. Meðal efnis er grein um ferðalög, um nautgriparækt, um kosningar, um draum, þegnskylduvinnu og ýmislegt fleira.
Viðar, sveitablað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi á árunum 1914-1916. Þetta blað fjallar m.a. um verslun á Íslandi, Um lestarfélagsskemmtun, grein um Böð eða sund, sögur, ævintýri og kveðskapur ýmis konar. Þá er kafli um tóbak. Inn í þann kafla hefur verið sett skjal eitt með undirskrift þeirra sem ætla að sniðganga slík efni. Þetta er undirritað 3. mars 1911 og hefur líklega verið bundið inn í þessa bók.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru fundagerðir, rekstrarreikningar félagins og lög, jarðótaskýrslur og félagaskrá. Bókin hefur varðveist mjög vel, kjölur bókarinnar er heill en límborði er yfir honum. Í bókinni er útprentað fundarboð og dagskrá aðalfundar þann 10.apríl líklega 1995.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru fundagerðir, rekstrarreikningar félagins, lög, jarðótaskýrslur og félagaskrá. Bókin hefur varðveist mjög vel, blaðsíðurnar eru viðkvæmar, þar sem sum blöðin hafa fest saman. Kjölur bókarinnar er heill en límborði er yfir honum.
Gjörðabók Ungmennafélags Vaka í Viðvíkurhreppi byrjar á stofnfundi mánudaginn 10. mars 1930, til að ræða um stofnun ungmennafélags í Viðvíkurhreppi. Lesin voru uppköst af lögum og borin undir atkvæði og samþykkt í heild. í bókinni eru síðan lögin rituð ásamt fundargerðum.
Ein innbundin og handskrifuð bók. Í bókinni eru fundagerðir, félagaskrá, bóka- og útlánayfirlit lestrafélagsins og reikningar. Bókin er í góðu ásigkomulagi,er vel læsileg. Límborði er á kili bjókarinnar.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, fjórar skrifaðar síður, undirritaðar af Ólafi Briem. Svör eru rituð aftan við, undirrituð af Jósef J. Björnssyni. Tillögur þar aftan við, undirritaðar af nefndarmönnum.