Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Um er að ræða ljósritað afrit. Ástand skjalsins er gott. Með liggur endurrit úr bæjarþingsbók frá 24.04.1974.
Vitnisburður Ásgríms Höskuldssonar varðandi landamerki Djúpadals. Eftirskrift af handriti frá 1622 með hendi Jóns Þorkelssonar, þjóðskjalavörðs. Ritað á tímabilinu 1917-1924.
Kaupbréf Steindórs Jónssonar og Ingunnar Ólafsdóttur fyrir Ytra-Djúpadal, 1445. Landamerki Djúpadals í Skagafirði. Eftirskrift af handriti frá 1445 og 1624 með hendi Jóns Þorlákssonar, þjóðskjalavarðar. Ritað á tímabilinu 1917-1924. Með innsigli þjóðskjalasafnsins.
4 handskrifaðar pappírsarkir í A4 stærð. Virðist uppkast að bréfi, afrit gert með kalkipappír. Varðar landmerkjamál Upprekstrarfélags Saurbæjarhrepps. Undirritað af Jóhann L. Jóhannessyni, Silfrastöðum.
Minnispunktarnir eru skráðir á 8 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Þeir varða deilur Eyfirðinga og Skagfirðinga um Nýjabæjarafrétt og Laugarfellsöræfi.
Tvö eintök af landakorti. Uppdráttur Íslands , blað 64, Vatnahjallavegur. Neðst í vinstra horni stendur: "Uppdráttur Íslands smækkaður niður í 1:200 000. Sýslumörk og landamerki samkævmt skoðun eigenda Ábæjar og Nýjabæjar í Skagafirði. Reykjavík 3. maí 1966 Zophonías Pálsson verkefr F.V.Í."
Uppskrift af kaupbréf frá árinu 1603 fyrir Vinhæli með lýsingu landamerkja ásamt vitnisburði þeirra Guðmundar Ólafssonar á Vindhæli og Davíðs Guðmundssonar á Spákonufelli frá 19. september 1829 um landamerki Þverár.