Erindi sem Guðjón flutti í tilefni þess að Björn læknir og Stefán arkitekt Jónssynir færðu gagnfræðiskólanum stjörnukíki að gjöf til minningar um föður þeirra Jón Þ. Björnsson skólastjóra.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur bréfmiði í A5 stærð þar sem þess er óskað að bréfið verði lesið upp á sýslufundi. Það varðar þakkir vegna gjafar sem Magnúsi var færð er hann hvarf til annarra starfa og flutti brott úr sýslunni. Ástand skjalsins er gott.