Innbundin tölvuútprentuð pappírsgögn sem inniheldur ársskýrslu körfuknattleiksdeildar Tindastóls, fyrir 1996-1997. Plast er yfir forsíðu skýrslunnar og bakið er úr þykkum pappír. Eintakið hefur varðveist mjög vel. Í skýrslunni er fjallað um fjárhag deildarinnar, skýrslu formanns ásamt skýrslum frá þjálfurum yngri flokka körfuboltadeildarinar.
Innbundin og handskrifuð bók, vel læsileg en kjölur bókarinnar hefur skemmst en að öðru leyti hefur hún varðveist ágætlega. Í bókinni eru fundargerðir stjórnar körfuknattleiksdeildar auk pappírsgagna sem tengjast fundargerðum deildarinnar. Meðal annars er fundargerð dags. 22.11.1993 vegna foreldrafundar. Hins vegar er tölvuprentuð fundargerð frá Formannafundi KKÍ, dags. 8. jan.1994
Innbundin og handskrifuð bók, vel læsileg og vel varðveitt. Í bókina er skráður stofnfundur körfuknattleikdseildar Umf.Tindastóls sem haldinn var 14. des.1969 og eru aðeins sex fundir skráðir í bókina, síðasti fundur er skráður 14.2.1971.
Efri röð frá vinstri: Sigurjón Magnússon, Rúnar Páll Björnsson, Örn Ragnarsson, Ingvi Geirmundsson, Björn M. Björgvinsson. Neðri röð frá vinstri:Guðmundur Stefánsson, Karl Ólafsson, Kári Sveinsson, Ingimar Jónsson og Óskar Björnsson.
Efri röð frá vinstri: Guðmundur Stefánsson, Karl Ólafsson, Kári Sveinsson, Ingimar Jónsson og Óskar Guðvin Björnsson. Neðri röð frá vinstri: Barn óþekkt, Sigurjón Magnússon, Rúnar Björnsson, Ingvi Geirmundsson og Björn M. Björgvinsson.
Innbundin og handskrifuð bók með lýsingu körfuboltaleikja fyrstu ár deildarinnar, nánar tiltekið frá 1965-1971. Í bókinni er einnig fundagerðir aðalfunda körfuknattleiksdeildarinnar, frá 11.12.1986 - 11.9.2003 ásamt því að tilgreindir eru einstaklingar sem hlutu verðlaun á uppskeruhátíðum deildarinnar í bæði kvenn- og karlaflokkum frá 1997 - 2000. Einnig eru pappírsgögn, eitt handskrifað og annað ljósritað sem eru með nöfnum einstaklinga sem tengjast viðurkenningum uppskeruhátíðar 1997.
Tvær ljósmyndir/pappírskópíur sem hafa varðveist mjög vel, önnur er svart hvít og er tekin á tímabilinu 1965-1970 af körfuboltaliði karla, hin ljósmyndin er í lit og er tekin um 1988-1990 af stúlknaliði Tindastóls.