Sigurvegarar í opnum flokki á skákþingi Norðurlands 1994. Frá vinstri, Matthías Keld 5,5v, Rúnar Sigurpálsson 5,5v og Stefán Andrésson 5v. Stefán er frá Bolungarvík og Matthías frá Reykjavík og kepptu þeir sem gestir. Fjær t.v. er Haraldur Hermannsson.
Norðurlandsmót í skák- haldið á Sauðárkróki 1957 til minningar um Svein Þorvaldsson skákmeistara. Efri röð frá vinstri: Árni Rögnvaldsson- Bragi Pálsson- Haukur Pálsson- Reynir Guðmundsson og Ingólfur Agnarsson. Neðri röð frá vinstri: Baldur Þórarinsson- Hjálmar Pálsson- Kristján Sölvason og Hörður Pálsson.
Norðurlandsmót í skák- haldið á Sauðárkróki 1957 til minningar um Svein Þorvaldsson skákmeistara. Hörður Pálsson bakari á Akranesi (t.v.) og Kristján Sölvason vélstjóri á Sauðárkróki (t.h.).
Fyrir utan Sauðárkrókskirkju. Frá vinstri Einar Sigtryggsson, Margeir Sveinn Hallgrímsson Valberg, Ottó Geir Þorvaldsson, Kristján Skagfjörð Jónsson, Jósafat Sigurðsson, Erlendur Hansen, Ingólfur Agnarsson. Skákmenn, mynd tekin við Sauðárkrókskirkju.