Í júlí 1985 fór fram á Sauðárkróki vinabæjarmót þar sem gestir frá fjórum vinabæjum Sauðárkróks komu í heimsókn og skoðuðu sig um í Skagafirði. Bæjirnir voru Köge í Danmörku, Esbo í Finnlandi, Kongsberg í Noregi og Kristianstad í Svíþjóð. Myndin er tekin við komu hópsins á Sauðárkrósflugvelli.
Hagirðingar á 20 ára afmælisfagnaði Rökkurkósins í Miðgarði í mars 1999. F.v Sigurður Hansen, Þórey Helgaóttir, Árni Bjarnason og Hafsteinn Lúðvíksson sem var stjórnandi.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur í Sauðárkrókskirkju á 90 ára afmæli kirkjunnar í nóvember 1982. Í fremstu röð eru frá hægri. Mínerva Björnsdóttir, Sólborg Björnsdóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Þuríður Pétursdóttir og Kristín Jóhannsdóttir. Karlarnir í öftustu röð f.h. Þorbergur Jósefsson, Héðinn Ásgrímsson, Gunnar Haraldsson, Páll Sigurðsson (með gleraugu) og Bragi Haraldsson. Stjórnandi kórsins er Jón Björnsson.
Tilg. Á Alþýðusönghátið sem haldin var á Sauðárkróki í júní 1997 sungu þátttakendur á hátíðinni við leiði Stefáns Guðmundssonar Íslandi í Sauðárkrókskirkjugarði.
Sveinn Guðmundsson með hryssuna Hrafnkötlu í taumi á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum 1990 þar sem Hrafnkatla ver í öðru sæti hryssna með afkvæmi.
Jóhann Magnússon á Stormi frá Sauðárkróki sem sigraði í tölti, fjógangi og tvíkeppni í íþróttakeppni Hestaíþróttadeildar Skagafjarðar sem fram fór á nýjnum skeiðvelli Léttfeta við Flæðagerði í júní 1985.
Folald sem Sigurður Ólason stefsmaður RARIK fann í skurði skammt frá Varmahlíð í nóvember 1988 í 9 stiga frosti. Eigandinn Markús Sigurjónsson á Reykjarhóli er fyrir framan folaldið.
Fjölskyldan sem rak Hótel Djúpuvík á Strödum sumarið 1987. F.v. Ásbjörn Þorgilsson, Eva Sigurbjörnsdóttir, Kristjana María og Arnar Logi Ásbjörns börn.
Lið Tindastól á Pollamóti eldri manna í knattspyrnu sem haldið var á Akureyri sumarið 1997. Aftari röð f.v. Ómar Bragi Stefánsson, Gunnar Guðmundsson, Óskar Björnsson, óþekktur, Páll Ragnarsson, og Kristján Blöndal. Fremri röð f.v. Stefán Ólafsson, Árni Stefánsson og Þórhallur Ásmundsson.
Fótboltalið Hvatar á Blönduósi sem sigraði í Stígandamótinu í innanhússknattspyrnu í íþróttahúsinu á Blönduósi í janúar 1995. Aftari röð f.v. Ævar markvörður, Sveinbjörn, Guðmundur og Páll Leó. Fremri röð f.v. Helgi, Hörður, Gísli og Jón Óskar.
Stjórn Umf. Tindastóls á 80 ára afmæli félagsins árið 1987. Efri röð f.v Rúnar Björnsson varaformaður, Matthías Viktorsson meðstjórnandi og Óskar G. Björnsson ritari. Neðri röð f.v. Páll Ragnarsson formaður og Stefán Logi Haraldsson gjaldkeri.
Eldri borgarar á Króknum taka í spil í Safnaðarheimilinu. Á borðinu t.v. má þekkja Huldu Gísladóttur (í rauðri peysu) og Sigurð Stefánsson og t.h sér á vanga Sigurjóns Sveinssonar. Konan í rósótta kjólnum við borðið fjær er Sesselja Ólafsdóttir (Lóa frá Daðastöðum). Aðrir óþekktir.
Eldri borgarar á Króknum taka í spil í Safnaðarheimilinu. Við borðið t.v. fjær eru Jósafat Sigfússon og Hólmfríður Jónasdóttir. Standandi við dyrnar eru Eiríkur Björnsson frá Gili t.v. og Guðmundur Andrésson dýralæknir. Þá eru systkinin Kristín og Sveinn Sölvabörn við borðið t.h. Aðrir óþekktir.
Eldri borgarar taka í spil í Safnaðarheimilinu á Króknum. Við borðið fjærst er Sveinn Sölvason og við miðborðið eru fjær Viggó Sigurjónsson og Sigríður Sigtryggsdóttir frá Skefilstöðum, þá Eiríkur Björnsson frá Gili og Guðvin Jónsson Skr. Við borðið næst t.h eru f.v. Bergur Magnússon frá Unastöðum, Guðrún B. Sigurðardóttir og sennilega Hólmfríður Sveinsdóttir. Aðrir óþekktir.
Lið Tindastóls í körfubolta sem varð Íslandsmeistari í 1. deild árið 1988. Aftari röð f.v. Björn Sigtryggsson, Jón Már Guðmundsson, Ágúst Kárason, Karl Jónsson, Eyjólfur Sverrisson og Kári Marísson þjálfari. Fremri röð f.v. Birgir Valgarðsson, Sverrir Sverrisson, Kristinn Baldvinsson og Jóhann Magnússon.
Körfubolti í íþróttahúsinu á Króknum. Í nóvember 1989 komu þeir erlendu leikmenn sem leika í Úrvalsdeildinni til Sauðárkróks og léku við Tindastól og unnu auðveldan sigur. Sverrir Sverrisson er fjærst en aðrir óþekktir.
Jón Bjarnason skólastjóri í ræðustóli og Pétur Sigurgeirsson biskup við hlið hans. Hugsanlega er þetta á prestaráðstefnunni "Friður á jörð" sem var haldin á Hólum sumarið 1982.