Stofan á Suðurgötu 10. Á myndinni er útvarp og grammófónn í horninu og svo pottaplöntur og myndir á veggjum. Þess má geta að Kristján hlustaði mikið á klassíska tónlist og Lóa var mikil blómakona.
Myndin er tekin í herbergi á óþekktum stað. Fyrir miðju er tafla sem á eru skrifaðar nótur. Beggja vegna við hanga myndir á veggjum. Vinstra megin er einhvers konar kommóða eða skrifpúlt með upprúlluðum pappír. Þar við hliðina eru tveir stólar.