Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar reglugjörð um grenjaleitir og refaveiðar í Skagafjarðarsýslu og kosningu á þremur mönnum í refaveiðinefnd fyrir hreppana. Ástand skjalsins er gott.
Sýslunefndafundur. Frá vinstri: Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Jón Sigurðsson, Reynistað, Sigurjón Helgason, Nautabúi og Bessi Gíslason, Kýrholti. Myndin er tekin í Gúttó (ca. um 1955).
Sýslufundur. Frá vinstri: Haraldur Jónasson, Völlum, Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Jón Sigurðsson, Reynistað, Sigurjón Helgason Nautabúi og Bessi Gíslason, Kýrholti. Næstur er Stefán Vagnsson, fundarritai Myndin er tekin í Gúttó (ca. um 1955).
Sýslufundur. Frá vinstri: Bessi Gíslason, Kýrholti, Gísli Gottskálksson, Sólheimagerði, Jón Gunnlaugsson, Móafelli, Hermann Jónsson, Ysta-Mói og Jón Jónsson, Hofi. Myndin er tekin í Gúttó (ca. 1950-1955).
Viðar, sveitablað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi á árunum 1914-1916. Þetta blað fjallar m.a. um verslun á Íslandi, Um lestarfélagsskemmtun, grein um Böð eða sund, sögur, ævintýri og kveðskapur ýmis konar. Þá er kafli um tóbak. Inn í þann kafla hefur verið sett skjal eitt með undirskrift þeirra sem ætla að sniðganga slík efni. Þetta er undirritað 3. mars 1911 og hefur líklega verið bundið inn í þessa bók.
Viðar blað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi 1916. Meðal efnis er grein um ferðalög, um nautgriparækt, um kosningar, um draum, þegnskylduvinnu og ýmislegt fleira.
Viðar, sveitablað Viðvíkurhrepps 1916. Meðal efnis er grein um hreppsveg, skemmtanir, hjónabandsástir, karlmennskusaga, kveðskapur og ýmislegt fleira. Í ritnefnd sátu: Hartmann Ásgrímsson, Bessi Gíslason, Guðbrandur Björnsson.