Frá afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Elsa Jónsdóttir bæjarritari í ræðustóli. Á bak við frá vinstri, Hilmir Jóhannesson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Stefán Guðmundsson alþingismaður og óþekktur.
Óþekktur fundur. F.v. Árni Ragnarsson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Björn Sigurbjörnsson skólastjóri, Björn Björnsson skólastjóri, Bjarni Brynjólfsson og Hilmir Jóhannesson.
Verðlaunahafar í vísnakeppni Safnahússins og Sjóvá/Almennra á Sæluviku vorið 1999 ásamt aðstendum keppnirnar.Frá vinstri, Hilmir Jóhannesson (1936-), Hjalti Þórarinn Pálsson (1947-) frá Safnahúsinu, Kristján Árnason frá Skálá (1929-2008) en hann átti besta botninn, Ingimar Jóhannsson (1949-) frá Sjóvá og Jón Gissurarson frá Víðimýrarseli. Á myndina vantar Sigurjón Runólfsson frá Dýrfinnustöðum en hann var í hópi verðlaunahafa.