Skyldmenni Gullu á Litlu-Gröf í N-Ameríku. Aftan á mynd er skrifað: Tekið s.l. sumar þegar Joann og John komu heim - og voru hjá mér í 3 vikur á Gimli í sumar íbúð minni. Við höfum haft alveg dásalegt haust. Veður blíða á hverjum degi og gott veður enn - sama sem enginn snjót enn. Bið að heilsa öllum.
George Johnson Vestur-Íslendingur. Frændi Guðlaugar og Þóris í gegnum móðurætt. Aftan á mynd er skrifað: Myndin er tekin 1967 þegar hann tók við embætti menntamálaráðherra í Manitoba. Myndin tekin í stjórnarráðshúsinu í Winnipeg.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri Arngrímur Sigurðsson, Þórir, Guðlaug, Sigríður Benediktsdóttir og Magnús Blöndal fóstursonur þeirra.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri; Magnús Blöndal, Arngrímur Sigurðsson, Sigríður Benediktsdóttir, Þórir Arngrímsson. Fyrir framan stendur Guðlaug Arngrímsdóttir.