Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar fjallskilamál Hofshrepps gegn Fellshreppi. Með liggur bréf frá Haraldi Hjálmarssyni og Hjálmari Pálssyni vegna málsins. Ástand skjalanna er gott.
Frá vinstri: Jón Björnsson deildarstjóri í Gránu og Haraldur Hjálmarsson verslunarmaður. Bak við Harald sér í Ole Aadnegaard fyrrverandi lögregluþjón á Sauðárkróki. Myndin er tekin í Gránu. Safn Kr. C. Magnússonar.