Í bókina eru skráðar fundagjörðir úthlutunarnefndar Verkamannafélagsins Fram 1996-1997. Bókin er innbundin og með línustrikuðum blaðsíðum, í hana eru PERSÓNUGREINANLEG TRÚNAÐARGÖGN er tengjast meðal annars bótum frá sameiginlegri úthlutunarnefnd verkalýðsfélaga á Sauðárkróki. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt.
Fundagjörðir hjálparsjóðs og sjúkrasjóðs Verkamannafélagsins Fram 1985-1997, innbundin bók í A4 stærð með handskrifuðum færslum og línustrikuðum blaðsíðum í henni eru persónugreinanleg trúnaðargögn. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi, ekki er færðar fundagerðir nema í hluta bókarinnar og er hún að mestu heil og ónýtt.
Tvö lausblaða blöð (líklega klippt úr fundagerðabók, sbr. númerum efst á blöðunum) línustrikuð sem á eru handskrifaðar fundagjörðir kjörnefndar Verkamannafélagsins Fram. Annað blaðið er dagsett 4/3,1996, hið síðara er dagsett 8/3 en ekkert ártal er á því. Blöðin eru vel læsileg og ágætlega varðveitt.
Fundagjörðir kjörstjórnar Verkamannafélagsins Fram 1997-1998, bókin er harðspjalda með línustrikuðum blaðsíðum. Í bókinni eru færðar fimm fundagerðir, sú fyrsta er dagsett 23/3 en ekkert ártal er skráð. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt.
Fundagjörðir samninganefndar Verkamannafélagsins Fram 1996-1997. Í bókinni er fyrsta fundagerð samninganefndarinnar sem haldin var 12.11.1996 auk tveggja annara funda sem nefndin hélt árið 1997 - ekkert annað er skráð í bókina. Bókin er í A4 stærð og er heilleg og vel læsileg.
Fundagerðabók stjórnar og trúnaðarmannaráðs Verkamannafélagsins Fram tímabilið 1989-1993. Innbundin handskrifuð bók í A4 stærð með línustrikuðum blaðsíðum. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist ágætlega.
Fundagerðabók Verkamannafélagsins Fram 1993-1998, sem inniheldur fundagerðir stjórnar. Innbundin handskrifuð með línustrikuðum blaðsíðum. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt.
Fundagjörðir Verkamannafélagsins Fram 1997-1999, í safninu eru úptrentuð og ljósrituð pappírsgögn með fundagerðum stjórnar V.M.F. Fram, stjórn sjúkarsjóðs Vlf. Fram og sameiginlegs fundar Verkamannafél. Fram og Verkakvennafélags Öldunnar. Safnið inniheldur fundarboð og dagskrá funda, einnig gögn sem tengjast dagskrárefnis fundanna, öll hefti voru hreinsuð úr safninu. Skjölum var raðað eftir dagsetningu funda og ártali - að öðru leyti var það látið haldast óbreytt. Öll gögn eru í góðu ásigkomulagi og vel læsilegt. Í fundagerð 24.9.1998 er t.d. rætt um samstarf V.M.F. Fram og Vkf. Ölduna um ýmis samstarfsverkefni félaganna, þar að auki er rætt um sameiningu þeirra. Í fundargerð stjórnar Vlf. Fram dags.18.10.1999 kemur meðal annars fram formlegar samþykktir félaganna tveggja um sameiningu.
Fundagerðabók Verkamannafélagsins Fram vegna Strandar sf. (sem er Sæmundargata 7b) sem Verkamannafélagið Fram átti. Þar rak félagið veislu- og fundarsal sem það leigði út. Í bókina eru skráðar þrjár fundagerðir auk þess sem ein fundagerð, dagsett 25. okt. (án ártals) er á lausu línustrikuðu blaði. Einnig voru í bókinni vélrituð blöð með dagskrá stjórnafundar, hugmynd að gjaldskrá og drög að starfslýsingu umsjónarmanns með sal. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.
Óbundin, línustrikuð og handskrifuð bók og vel læsileg. Blöðin eru flest orðin laus, einnig hafa blöð verið klippt eða skorin úr bókinni en að öðru leyti hefur bókin varðveist ágætlega. Einn vélritaður miði er í bókinni um skyldur fundarritara.
Innbundin og handskrifuð fundargerðarbók, tímabilið 1912-1922. Þetta er stofnfundabók Sngmennafélags Tindastóls og í henni eru fyrstu lög þess. Nokkrar blaðsíður hafa verið klipptar eða skornar úr, ein blaðsíða er laus í bókinni. Binding bókarinnar er orðin mjög léleg.
Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bindingin farin að gefa sig annars er bókin í góðu ásigkomulagi. Kjölurinn og kápan eru heilleg, límt er yfir kápuna.
Innbundin handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin eru í góðu ásigkomulagi, nokkur blöð hafa verið klippt eða skorin úr. Tvö laus blöð eru í bókinni, eitt handskrifað bréf, dags 14.11.1937 um úrsögn úr U.M.F.T. Bréfið er undirritað af Jófinnu Maríusdóttur. Eitt vélritað bréf frá Sambandsstjórn U.M.F.Í. dags. 5. mars.1940 vegna skuldar ungmennafélagsins við U.M.F.Í.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Þessi gjörðabók kom í staðinn fyrir aðra sem byrjað var að skrá fundargerðir í (fyrir tímabilið 1939-1962). Bókin hefur varðveist ágætlega.
Innbundin og handskrifuð og vel læsileg fundagerðarbók. Í athugasemd í bókinni kemur fram að það vanti fundargerðir fyrir árið 1962 þar sem þær glötuðust.
Innbundin og handskrifuð og vel læsileg bók, fundagerðirnar eru frá stofnun Ungmannafélags Tindastóls. Blaðsíður eru heillegar en bókin hefur varðveist illa, bókin er án kjalar og bindingin er einnig illa farin. Nokkuð af blöðunum inni í bókinni eru laus úr bindingunni.
Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin hefur líklega lent í raka eða bleytu sem sést sést á öftustu blaðsíðunum. Í bókinni er athugasemd sem er svohljóðandi; Bók þessi týndist árið 1941. Var þá ný gjörðabók tekin í notkun og gildir hún frá 5. janúar 1942 til ársloka 1948.
Tvær ljósmyndir/pappírskópíur sem hafa varðveist mjög vel, önnur er svart hvít og er tekin á tímabilinu 1965-1970 af körfuboltaliði karla, hin ljósmyndin er í lit og er tekin um 1988-1990 af stúlknaliði Tindastóls.
Þunn stílabók með línustrikuðum blaðsíðum sem inniheldur lista yfir félagsmenn Verkamannafélagsins Fram 1928-1929 og mætingu þeirra á fundi félagsins. Hefti sem binda bókina voru orðin mjög ryðguð og farin að molna og skemma blaðsíðurnar í miðjubrotinu. Heftin voru fjarlægð (molnuðu reyndar í sundur við viðkomu), bókin er vel læsileg og að öðru leyti hefur varðveist ágætlega.
Fundgerðabók kjörstjórnar Verkamannafélagsins Fram 1966-1972. Bókin er innbundin með línustrikuðum blaðsíðum, níu fundagerðir eru skráðar í bókina. Bókin er ágætlega varðveitt og vel læsileg. Í bókinni var umslag sem á stendur "Framboðslistar: til fulltrúakjörs á 32. þing A.S.Í 1972". Með umslaginu eru þrjú blöð, tvö í A4 stærð og eitt í A5, sem er línustrikað. A4 blöðin eru vélrituð og handskrifuð með nöfnum fulltrúa fyrir fulltrúakjör fyrir þing A.S.Í árið 1972 fyrir lista A og B. Á blöðunum eru líka nöfn meðmælenda fulltrúanna. Á A5 blaðinu er handskrifuð yfirlýsing þar sem undirritaður, Egill Helgason segist hafa tekið á móti framboðslistum fyrir áðurnefndu fulltúakjöri. Egill skrifar undir yfirlýsinguna sem er dagsett 4. okt.1972. Blöðin eru viðkvæm til meðhöndlunar.
Fundagerðabók stjórnar Verkamannafélagsins Fram 1935-1942. Innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum í A5 stærð. Bókin er ágætlega varðveitt og vel læsileg.
Leikfélag Sauðárkróks setti upp leikritið Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjónsson árið 1960. Það var frumsýnt 13. desember. Leikstjóri var Eyþór Stefánsson.
Líklega frá áramótunum 1979-1980. Hefð var fyrir ólátum á Sauðárkróki á þessum tíma þar sem menn skipuðust í lið og slógust. Þarna átti að stoppa þessi læti í eitt skipti fyrir öll með sameiginlegu átaki.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók og vel varðveitt. Bókin er í A4 stærð og í henni eru undirritanir einstaklinga, líklega félagsmanna U.M.F.T. ásamt dagsetningum og hefur verið nýtt sem gestabók / félagatal.
Ottó Geir Þorvaldsson Fæddur á Sauðárkróki 18. febrúar 1922 Látinn 5. ágúst 2001 Bóndi í Víðimýrarseli og Viðvík í Skagafirði. Var á Sauðárkróki 1930. Síðast bús. í Viðvíkurhreppi.
Jóhann Eiríkur Jónsson Fæddur á Sauðárkróki 19. ágúst 1921 Látinn 20. mars 2004 Var á Siglufirði 1930. Heimili: Sauðárkrókur. Var á Beinakeldu í Torfalækjahr. - A-Hún. 1957. Bóni og frjótæknir á Beinakeldu. Síðast bús. þar.
Þetta mun vera Sigurður Sigurðsson (1917-1999) eldri frá Sleitustöðum - Þetta er tekið út á eyri á gamla vellinum - og Ungmennafélagið Hjalti var í Hjaltadalnum. (Heimildarmaður Jón Sigurðsson bróðir hans.
Björgvin Bjarnason í ræðustól. T. v. við dyrnar má sjá Sigurð Sigurðsson sýslumann Guðjón Ingimundason og Valgarð Blöndal. Guðrún Sveinsdóttir kennslukona (með hatt við stigan ofan í laugina)T.v. við Guðrúnu er María Pétursdóttir - þá (Finney Reginbaldsdóttir) - Soffía Jónsdóttir - Erla Brynjólfsdóttir - Árbæ (situr) og Sveinsína Bergsdóttir (situr lengst t.v.) Lengst t. h. Abelína Magnúddóttir - Stefanía Anna Frímannsdóttir. Kristín Sölvadóttir og Brynhildur Jónasdóttir. Kári Steinsson stendur að baki Brynhildi. Við vegginn t.h. Ingibjörg Kristjánsdóttir (með gleraugu önnur frá horninu) þá Ögmundur Svavarsson og Sverrir Svavarsson. Ingibjörg Jónsdóttir situr framan við Ögmund. Vígsludagur sundlaugarinnar árið 1957